Innlent

Bjuggust við fleirum í strætisvagninn til Eyja

Sigtryggur Ari og Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Farþegar stigu spenntir um borð í vagn númer 52.
Farþegar stigu spenntir um borð í vagn númer 52. Vísir/Sigtryggur Ari
„Við héldum að það yrðu það margir á leið í strætóinn í Landeyjahöfn að við mættum 40 mínútum fyrir brottför,“ sögðu vinkonurnar Vigdís Kristín Rohleder og Stefanía Helga Sigurðardóttir sem voru mættar í Mjóddina vel tímanlega fyrir áætlaða brottför strætisvagns númer 52 í Landeyjahöfn.

Úr Landeyjahöfn áttu Vigdís og Stefanía bókað far með Herjólfi til Eyja þar sem þær ætluðu á Þjóðhátíð. Báðar er þær nýorðnar nítján ára gamlar. Hvorug þeirra hefur farið áður á Þjóðhátíð og kváðust mjög spenntar að fara.

Fimmtán mínútum fyrir brottför voru aðeins sex manns að bíða eftir strætisvagninum en rétt fyrir brottför hafði hópurinn stækkað upp í ríflega tuttugu.

„Vinir okkar eru þegar komnir út í Eyjar og tóku fyrir okkur tjöldin og ýmislegt annað. Ég held reyndar að margir hafi annaðhvort ekið sjálfir í Landeyjahöfn eða hreinlega fengið einhvern til þess að skutla sér,“ sagði Vigdís.

Auk Þjóðhátíðar í Eyjum eru fjölmargar útihátíðir um allt land nú um helgina að venju. Þær helstu eru Neistaflug í Neskaupstað, Norðanpaunk á Laugarbakka, Innipúkinn í Reykjavík, Halló Akureyri, Mýrarbolti í Bolungarvík, Sæludagar í Vatnaskógi, Kotmót Hvítasunnukirkjunnar í Fljótshlíð og Flúðir um versló.

Stefanía Helga Sigurðardóttir og Vigdís Kristín Rohleder í miklu stuði.Vísir/Sigtryggur Ari
Þá er ótalið Unglingalandsmót UMFÍ í Þorlákshöfn þar sem búist er við margmenni í miklu stuði. Kort af úthátíðum helgarinnar er á á síðu 12.

Suðurlandsvegi var lokað við Landvegamót, austan við, um klukkan þrjú í gær vegna umferðarslyss og ekki opnaður aftur fyrr en rúmum tveimur tímum síðar. Ökumönnum var beint um hjáleið og olli slysið nokkrum töfum á umferð. Um var að ræða árekstur bifhjóls og jepplings. Slasaðist einn bifhjólamaður töluvert en annar minna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×