Fyrsta aftakan með rafmagnsstól í fimm ár Atli Ísleifsson skrifar 2. nóvember 2018 08:50 Dómstóll dæmdi Edmund Zagorski til dauða árið 1984 fyrir morð á tveimur mönnum í tengslum við fíkniefnaviðskipti. Vísir/AP/Getty
Fangi, sem hafði varið dæmdur til dauða fyrir tvö morð, var tekinn af lífi með rafmagnsstól í Tennessee í Bandaríkjunum í gær, eftir að hæstiréttur landsins hafði synjað beiðni um frestun. Hinn 63 ára Edmund Zagorski var úrskurðaður látinn klukkan 19:26 að staðartíma. Aðspurður um hvort hann hefði eitthvað að segja að lokum, svaraði hann „let‘s rock“. Zagorski er fyrsti dauðadæmdi maðurinn til að vera tekinn af með rafmagnsstól í Tennessee frá árinu 2007 og í Bandaríkjunum frá 2013. Dómstóll dæmdi Zagorski til dauða árið 1984 fyrir morð á tveimur mönnum í tengslum við fíkniefnaviðskipti.Af tvennu illu Málið hefur vakið sérstaka athygli í Bandaríkjunum þar sem Zagorski bað um það í síðasta mánuði að verða tekinn af lífi í rafmagnsstól til að sleppa við að fá eitursprautu. Sagði hann að af tvennu illu kysi hann rafmagnsstóllinn. Í Tennessee fá dauðadæmdir fangar að velja með hvaða aðferð þeir verða teknir af lífi. Zagorski lét hafa eftir sér að það bryti í bága við stjórnarskrá að þurfa að velja milli tveggja villimannslegra aftökuaðferða. Þá sagði hann að beiting eitursprautu og rafmagnsstóls væru stjórnarskrárbrot í sjálfu sér.Fjórtán fangar frá 2000 Að sögn blaðamanns, sem var viðstaddur aftökuna, horfði Zagorski mestmegnis beint áfram þann tíma sem hann var í aftökuklefanum, en leit einnig stuttlega í kringum sig í klefanum í fangelsinu í Nashville. Einungis níu ríki Bandaríkjanna heimila notkun á rafmagnsstólnum sem aðferð til að taka dauðadæmda fanga af lífi. Alls hafa fjórtán fangar verið teknir af lífi með þessari aðferð frá aldamótum.
Bandaríkin Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira