Handbolti

Guðmundur: Ætlum í milliriðilinn en það verður ögrandi verkefni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson. vísir/daníel
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, valdi 20 manna æfingahóp sinn í gær en æfingar liðsins hefjast í dag.

Guðmundur leggur ríka áherslu á varnarleik eins og alltaf enda nokkrir leikmenn í hópnum sem eru þar nær eingöngu sem varnarmenn.

„Það er mín skoðun að lykillinn að árangri í þessari íþrótt er að spila öfluga vörn og styðja þar með við bakið á markvörðunum og síðan auðvitað að geta beitt hraðaupphlaupum. Það verður svolítið rauði þráðurinn hjá okkur, ég skal játa það,“ sagði Guðmundur á blaðamannafundi HSÍ í gær.

„Við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að við þurfum að fara vel með okkar sóknir. Við erum með góða sóknarleikmenn en við erum kannski veikastir fyrir á línunni þar sem lítt reyndir menn eru. Við þurfum bara að nýta það sem við höfum,“ sagði Guðmundur.

Ísland er í riðli með Króatíu, Spáni, Makedóníu, Barein og Japan. Aðeins þrjú lið fara áfram í milliriðilinn en hvað er markmiðið hjá liðinu? Er nóg að komast til Kölnar í milliriðilinn eða vill liðið fara þangað með einhver stig?

„Venjan er sú að þegar að hópurinn hittist þá setjum við okkur sameiginleg markmið. Ég get samt alveg sagt núna að auðvitað viljum við komast í milliriðilinn. Við viljum fara til Kölnar. Hvort að það verði með einhver stig í farteskinu eða ekki læt ég liggja á milli hluta,“ sagði Guðmundur.

„Það eitt að komast í milliriðilinn upp úr þessum riðli okkar er alls ekki einfalt og mjög ögrandi verkefni. Við stefnum að sjálfsögðu að þessu en meira er ég ekki tilbúinn að sjá mig um þetta því fyrst vil ég hitta liðið og ræða þessa hluti við þá,“ sagði Guðmundur Guðmundsson.

Klippa: Guðmundur um markmiðin

Tengdar fréttir

Hvaða átta leikmenn mun Guðmundur stroka út af HM-listanum?

Tuttugu bestu handboltamenn þjóðarinnar verða í dag valdir í æfingahóp íslenska karlalandsliðsins en þeir munu mæta á svæðið 27. desember þegar íslenska landsliðið hefur lokaundirbúning sinn fyrir HM í handbolta.

„Eitt erfiðasta val sem ég hef tekið þátt í“

Bjarki Már Elísson er ekki í 20 manna æfingahópi Guðmundar Guðmundssonar fyrir HM í janúar og fer því ekki á HM nema aðrir detti út. Guðmundur sagði þetta eitt erfiðasta val hans í kringum landsliðið.

Myndband: Svona var blaðamannafundur HSÍ

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, skar 28 manna hópinn niður í 20 fyrir æfingarnar fyrir HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×