Handbolti

Arnar Freyr markahæstur í stórsigri Kristianstad

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Arnar Freyr Arnarsson í landsleik.
Arnar Freyr Arnarsson í landsleik. vísir/getty
Íslendingalið Kristianstad átti ekki í miklum vandræðum með Lugi í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta en liðin áttust við á heimavelli Lugi í kvöld.

Arnar Freyr Arnarsson, Ólafur Guðmundsson og Teitur Örn Einarsson leika með Kristianstad en liðið er í sérflokki í Svíþjóð.

Fór svo að þeir unnu níu marka sigur, 26-35 á Lugi. Arnar Freyr var markahæstur hjá Kristianstad með sjö mörk. Ólafur skoraði fimm en Teitur Örn komst ekki á blað.

Eins og greint var frá fyrr í þessari viku er Arnar Freyr búinn að semja við danska úrvalsdeildarliðið GOG og mun hann færa sig um set næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×