Handbolti

Nokkur spurningarmerki í þessum hóp vegna meiðsla

Hjörvar Ólafsson skrifar
Guðmundur Þórður og Gunnar Magnússon kynna hópinn.
Guðmundur Þórður og Gunnar Magnússon kynna hópinn. Fréttablaðið/Eyþór
Guðmundur Þórður Guðmundsson skar niður þann 28 leikmanna hóp, sem hann hefur skráð sem mögulega leikmenn fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í handbolta karla sem fram fer í janúar, í 20 leikmanna æfingahóp. Guðmundur segir að taka þurfi stöðuna á þremur leikmönnum liðsins hvað meiðsli varðar og erfiðast hafi verið að velja þá tvo leikmenn sem skipa munu stöðu vinstri hornamanns að þessu sinni.

„Mesti hausverkurinn var klárlega að velja þá tvo leikmenn sem við ætluðum að hafa í vinstra horninu. Það var einkar erfitt að ákveða það að skilja Bjarka Má Elísson eftir og það var erfitt að tilkynna honum þá ákvörðun. Mér fannst hins vegar betra að taka þessa ákvörðun strax í stað þess að láta þá mæta til æfinga og bítast um stöðuna. Það sama á við um hægra hornið og markmannsstöðuna,“ segir hann um valið.

„Svo erum við að ganga í gegnum kynslóðaskipti og það er mikil uppstokkun í liðinu. Það tók nokkurn tíma að finna út hvernig best væri að hafa hópinn. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Haukur Þrastarson og Rúnar Kárason hafa verið að glíma við meiðsli undanfarið og við munum nota æfingarnar á komandi dögum og leikina milli jóla og nýárs til þess að meta stöðuna á þeim. Ég hef verið í töluverðum samskiptum við Alfreð Gíslason [þjálfara Kiel] um Gísla Þorgeir og hann hefur tjáð mér að málin séu í góðum farvegi hjá Gísla,“ segir Guðmundur um stöðuna á hópnum.

„Við höfum stuttan tíma til þess að undirbúa liðið og það bætir svo sannarlega ekki úr skák hversu seint deildirnar í Noregi og Svíþjóð klárast. Það er til að mynda bikarúrslitaleikur í Noregi 29. desember sem mér finnst fráleitt og mjög undarlegt að alþjóða handboltasambandið láti það viðgangast. Ég hef minni áhyggjur af sóknarleiknum og mun einblína meira á að fara yfir varnarleikinn í undirbúningnum. Við þurfum til að mynda að æfa það hvernig við verjumst sjö á móti sex sem er afbrigði sem Króatía og Makedónía hafa mikið beitt,“ segir hann um komandi vikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×