Hafnar því að verið sé að draga úr greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgana Jóhann K. Jóhannsson skrifar 4. janúar 2019 18:45 Fæðingartíðni á Íslandi hefur jafnt og þétt minnkað og er nú um 1,71 barn á hverja konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið.
Heilbrigðisráðherra hafnar því að verið sé að draga úr greiðsluþátttöku ríkisins vegna tæknifrjóvgana en breytingar voru gerðar á reglugerð um greiðsluþáttöku nú um áramótin. Tilvera, samtök um ófrjósemi segja breytinguna hafa stóraukinn kostnað í för með sér fyrir sjúklinga í tæknifrjóvgunarmeðferðum. Fæðingartíðni á Íslandi hefur fallið nær jafnt og þétt frá árinu 1960 þegar hún var mest. Á vef Hagstofunnar segir að frjósemi kvenna á Íslandi árið 2017 hafi verið minni en nokkru sinni áður en þá var frjósemi 1,71 barn en yfirleitt sé miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Frjósemi hefur aldrei verið lægri á Íslandi frá því að mælingar hófust árið 1853. Við skoðun á rannsóknarstofu LivioVísir/Vilhelm Ný reglugerð var samþykkt og tók gildi á 11 dögum Heilbrigðisráðuneytið tilkynnti fyrir áramótin breytingar á reglugerð um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands. Fyrir breytingu var engin greiðsluþátttaka af hendi ríkisins í fyrsta skipti glasafrjóvgunar og smásjárfrjóvgunar en fimmtíu 50% þátttaka ef framkvæmda þurfti aðgerðina í annað, þriðja og fjórða skipti. Eftir breytingu tekur ríkið þátt í kostnaði sem nemur 5% í fyrsta skipti glasafrjóvgunar og smásjárfrjóvgunar. 30% ef farið er í annað skipti en ríkið tekur engan þátt ef farið er í þriðja eða fjórða skipti. Þæðingartíðni á Íslandi hefur aldrei verið eins lágVísir/Vilhelm Reglugerðarbreytingin gerð vegna tveggja þátta Heilbrigðisráðaherra segir að ráðist hafi verið í breytingu þessarar reglugerðar vegna tveggja þátta sem ekki hafi verið tekið tillit til í fyrri reglugerð. „Það er í fyrsta lagi að koma til móts við fyrstu meðferð þar sem það var engin greiðsluþátttaka og í öðru lagi að hverfa frá því að það yrði ekki þátttaka fyrir þá sem ættu börn fyrir,“ segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra. Tilvera, samtök um ófrjósemi gagnrýna breytinguna og sagði Björn Gunnar Rafnsson, varaformaður samtakanna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag að þessi mikla lækkun ríkisins í greiðsluþáttöku hefði verið þvert á væntingar og að með breytingunni væri kostnaður þeirra sem færu í fjórar meðferðir að aukast um 507 þúsund krónur. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherraVísir/Vilhelm Ekki verið að draga úr greiðsluþátttöku heldur verið að færa til fé Heilbrigðisráðherra hafnar því að verið sé að draga úr greiðsluþátttöku með breytingunni heldur verið sé að færa fjármagn til innan kerfisins. Í ljósi þess að greiðsluþátttaka hins opinbera er nú 5% við fyrstu meðferð hefði þá ekki verið hægt að hækka það hlutfall í ljósi þess að ríkið tekur ekki lengur þátt í þriðju og fjórðu meðferð. „Það lá fyrir að það stæði ekki til að auka fjármagn inn í þetta þannig að við erum í raun og vera bara að hliðra og koma þá til móts við þá sem að eru flestir þarna sem að eru þeir sem eru að fara í fyrsta sinn,“ segir Svandís
Frjósemi Heilbrigðismál Tengdar fréttir Sænska fyrirtækið IVF lætur til sín taka í tæknifrjóvgun á Íslandi Sænska fyrirtækið IVF Sverige ætlar að opna nýja tæknifrjóvgunardeild í Reykjavík. Deildin, sem mun heita IVF klíníkin Reykjavík, verður rekin í samstarfi við fæðingar- og kvensjúkdómalæknana Snorra Einarsson og Ingunni Jónsdóttur, sem hafa bæði lært fagið og starfað við það í Svíþjóð, og Steinunni Þorsteinsdóttur lífeindafræðing. 7. desember 2015 07:00 Einhleyp og eignaðist þríbura með tæknifrjóvgun: Valborg væri alveg til í fleiri börn „Árið 2012 ákvað ég að mig langaði að eignast barn ein.“ 20. september 2017 10:30 Stefnir ekki að breytingum á lögum um staðgöngumæðrun Heilbrigðisráðherra hyggst ekki leggja til lagabreytingar um staðgöngumæðrun á komandi þingi þrátt fyrir réttaróvissu í málaflokknum. Lagaprófessor segir þörf á skýrari löggjöf, hvort sem henni sé ætlað að rýmka eða takmarka heimildir til staðgöngumæðrunar. 13. ágúst 2018 20:00 Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Sænska fyrirtækið IVF lætur til sín taka í tæknifrjóvgun á Íslandi Sænska fyrirtækið IVF Sverige ætlar að opna nýja tæknifrjóvgunardeild í Reykjavík. Deildin, sem mun heita IVF klíníkin Reykjavík, verður rekin í samstarfi við fæðingar- og kvensjúkdómalæknana Snorra Einarsson og Ingunni Jónsdóttur, sem hafa bæði lært fagið og starfað við það í Svíþjóð, og Steinunni Þorsteinsdóttur lífeindafræðing. 7. desember 2015 07:00
Einhleyp og eignaðist þríbura með tæknifrjóvgun: Valborg væri alveg til í fleiri börn „Árið 2012 ákvað ég að mig langaði að eignast barn ein.“ 20. september 2017 10:30
Stefnir ekki að breytingum á lögum um staðgöngumæðrun Heilbrigðisráðherra hyggst ekki leggja til lagabreytingar um staðgöngumæðrun á komandi þingi þrátt fyrir réttaróvissu í málaflokknum. Lagaprófessor segir þörf á skýrari löggjöf, hvort sem henni sé ætlað að rýmka eða takmarka heimildir til staðgöngumæðrunar. 13. ágúst 2018 20:00