Lífið

Dóttir Bjarna Ben gaf honum krúttlegt bindi í afmælisgjöf

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarni Ben er fjármálaráðherra.
Bjarni Ben er fjármálaráðherra. vísir/vilhelm
Guðríður Lína Bjarnadóttir gaf föður sínum Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra heimatilbúið bindi í afmælisgjöf.

Bjarni varð 49 ára á laugardaginn og fagnaði hann deginum í faðmi fjölskyldunnar.

„Mér finnst ég fínn og flottur með nýja bindið frá Guðríði Línu,“ segir Bjarni á Facebook.



Þeir Einar Bárðarson og Svavar Örn vöktu afmælisbarnið sjálft í þættinum Bakaríið á Bylgjunni á laugardaginn og má heyra það spjall hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×