Innlent

Elta sauðfé í þjóðgarði

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Frá Þingvöllum.
Frá Þingvöllum.

„Það er væntanlega einhvers staðar gat á girðingu,“ segir Gunnar Þórir Þorkelsson héraðsdýralæknir sem sendi á dögunum bréf til Bláskógabyggðar vegna kinda í þjóðgarðinum á Þingvöllum. „Matvælastofnun hafa borist ábendingar um, að innan þjóðgarðs á Þingvöllum gangi hópur sauðfjár sjálfala og aðgæslulaus,“ sagði í bréfi héraðsdýralæknisins sem vitnaði í lög um velferð dýra.

Þau skuli að vetri til hafa skjól fyrir öllum veðrum og þörfum þeirra á að sinna einu sinni á dag. „Auk ofangreinds er einnig brýnt að ná til þessa fjár þar sem Matvælastofnun hefur borist tilkynning um að fé sé að sleppa milli varnarhólfa Landnámshólfs og Grímsness- og Laugardalshólfs,“ skrifaði Gunnar Þórir. „Nauðsynlegt er að athuga hvort þetta fé sé í röngu varnarhólfi. Eins er mikilvægt að staðfest sé hver sé umráðamaður fjárins, svo unnt sé að kanna almennan aðbúnað fjár í hans umsjá verði þörf talin á.“

Einar Á. E.  Sæmundsen þjóðgarðsvörður segir nokkuð hafa verið um lausagöngu sauðfjár í þjóðgarðinum undanfarin ár. Ástæðan sé að hluta sú að viðhaldi þjóðgarðsgirðingar að austanverðu sé ábótavant. Úr því hafi loks verið bætt í fyrra og fé í þjóðgarðinum þá fækkað eitthvað. „Hins vegar er girðingin fyrir ofan Almannagjá nokkuð lek. Einnig eru þar nokkur hlið sem ferðamenn skilja oft eftir opin. Þar fyrir utan er eitthvert fé sem mögulega hefur komist þar inn vegna framkvæmda á Haki á síðasta ári,“ útskýrir Einar.

Laga eigi  girðinguna við  Almannagjá  fyrir vorið. „Girðingin fyrir ofan Almannagjá er sauðfjárveikigirðing og því eiga þær kindur sem koma ofan af niður í sigdældina ekki afturkvæmt til síns heima samkvæmt laganna hljóðan.“ Einar segir nú áætlað að um tíu kindur séu í þjóðgarðinum vestanverðum og að einhverjar kindur séu líka austanmegin.

„Það er mikill snjór núna og jarðbönn þó að þær geti nærst nokkuð á birkigróðri,“ segir þjóðgarðsvörður.  Hægt sé að rekja spor þeirra í snjónum og stefnt sé að því að ná skepnunum á næstu dögum. „Féð verður handsamað næstu daga,“ staðfestir Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri Bláskógabyggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×