Innlent

Lenti á Keflavíkurflugvelli vegna reyks í farþegarými

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Vél British Airways. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Vél British Airways. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Robert Alexander/Getty
Beina þurfti vél breska flugfélagsins British Airways af leið sinni frá Lundúnum til New York eftir að tilkynning um reyk í farþegarými vélarinnar bars. Vélin lenti á Keflavíkurflugvelli á fjórða tímanum í dag. Þetta kemur fram á vef Ríkisútvarpsins.

Viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli vegna lendingar vélarinnar sem er af gerðinni Boeing 777-200.

Samkvæmt frétt RÚV sakaði engan og gekk lendingin afar vel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×