Innlent

Tveimur flugvélum lent í Keflavík vegna veikinda um borð

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Annar farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja frá flugvellinum.
Annar farþeginn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja frá flugvellinum. Vísir/vilhelm
Tveimur flugvélum hefur verið lent á Keflavíkurflugvelli undanfarna daga vegna veikinda farþega. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Önnur vélin var á leið frá Chicago í Bandaríkjunum til Varsjár í Póllandi þegar farþegi veiktist. Við nánari skoðun eftir lendingu hér var ákveðið að farþeginn gæti haldið för sinni áfram.

Hin vélin var á leiðinni frá Montréal í Kanada, til Chicago og þaðan til Istanbúl í Tyrklandi þegar kona um borð kenndi sér meins. Hún var flutt með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×