Innlent

Eftirlýstur með dólgslæti kýldi lögreglumann í flugvél

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. Vísir/Jóhann K.
Flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur að undanförnu þurft að hafa afskipti af nokkrum ferðalöngum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna ölvunar og óspekta.

Þannig þurftu lögreglumenn að fjarlægja ölvaðan mann úr flugvél en hann hafði verið með læti og dólgshátt um borð. Lögregla tók manninn tali og brást hann þá við með því að kýla lögreglumann í andlitið svo sá síðarnefndi datt aftur fyrir sig. Maðurinn var þá handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann reyndist vera eftirlýstur.

Þá þurfti að fjarlægja mann, sem var á leið til Stokkhólms, úr flugvél vegna ölvunar en hann var með læti og hafði uppi hótanir við lögreglu.

Í þriðja málinu var um að ræða flugfarþega sem hafði látið ófriðlega í flugi frá Varsjá. Hann hafði drukkið eigið áfengi um borð og ekki farið eftir fyrirmælum flugáhafnar, heldur verið ógnandi í tali. Lögregla fylgdi honum í gegnum flugstöðina og var hann þá orðinn hinn rólegasti og fór sína leið, að því er segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×