Enski boltinn

Messan: Salah og Mane hafa verið frábærir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mo Salah.
Mo Salah. vísir/getty
Liverpool hefur þegar toppað sinn besta árangur frá upphafi í ensku úrvalsdeildinni en ekki er víst að það dugi til þess að liðið verði meistari.

„Það er verið að slá öll met sem hægt er að bæta á þessari leiktíð,“ segir Hjörvar Hafliðason.

Mo Salah er markahæsti leikmaður deildarinnar en hefur samt mátt þola gagnrýni.

„Salah og Mane hafa verið frábærir. Liverpool bætti við sig vörn og markvörslu þess utan. Það er ótrúlegt að liðið sé bara búið að tapa einum leik en sé í öðru sæti,“ segir Ólafur Ingi Skúlason.

Umræðuna um Salah og Liverpool má sjá hér að neðan.



Klippa: Messan um Salah og Mane

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×