Enski boltinn

Özil vill vera áfram hjá Arsenal

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mesut Özil
Mesut Özil vísir/getty
Mesut Özil segist hamingjusamur hjá Arsenal og hann vill vera þar áfram, en þýski miðjumaðurinn hefur ítrekað verið orðaður frá félaginu.

Özil á tvö ár eftir af samningi sínum við Skytturnar en það hefur mikið verið rætt um framtíð hans. Knattspyrnustjórinn Unai Emery hrósaði honum hins vegar nýlega fyrir hvernig hann svaraði kallinu eftir meiri stöðugleika.

„Ég er þrítugur í dag, ég á enn nokkur ár inni. Ég á tvö ár eftir hér og vil vera hér, eftir það veit ég ekki hvað gerist,“ sagði Özil í viðtali við Sky Sports.

„Það er pirrandi að fá ekki að spila alla leiki en svona er fótboltinn.“

Það gæti hins vegar haft áhrif á framtíð Özil hvort Arsenal nær Meistaradeildarsæti. Arsenal er tveimur stigum frá fjórða sæti deildarinnar fyrir síðustu tvær umferðirnar og er í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×