Fótbolti

Arnór Ingvi með sex stiga forskot á toppnum í Svíþjóð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Arnór í leik með Malmö fyrr á leiktíðinni.
Arnór í leik með Malmö fyrr á leiktíðinni. vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason var í byrjunarliði Malmö sem heldur áfram sigurgöngu sinni í Svíþjóð. Í dag vann Malmö 2-1 sigur á Örebro.

Marcus Antonsson skoraði fyrsta markið á fjórtándu mínútu en fimm mínútum síðar var það Filip Rogic sem jafnaði fyrir Örebro af vítapunktinum.







Það var svo danski miðjumaðurinn, Anders Christiansen, sem skoraði sigurmarkið á 68. mínútu. Malmö á toppnum með sex stiga forskot á annað Íslendingalið, AIK.

Arnór var tekinn af velli á 82. mínútu en hann hefur verið fastamaður í toppliðinu á þessari leiktíð og leikið vel.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×