Innlent

Lögreglan leitar þessa manns

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þau sem þekkja deili á manninum eru beðin um að hafa samband við lögreglu.
Þau sem þekkja deili á manninum eru beðin um að hafa samband við lögreglu. Mynd/ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur birt Facebook-færslu þar sem upplýsinga um manninn á meðfylgjandi mynd er óskað, vegna máls sem embættið hefur til rannsóknar.

„Á meðfylgjandi mynd, þótt óskýr sé, má greina ökumann bifreiðar sem óskað er eftir að ná tali af.“

Beinir lögregla þeim tilmælum til mannsins að hafa samband við lögreglu í síma 444-1000.

Eins eru þau sem vita hver maðurinn er eða hvar hann er niður kominn, beðin um að hafa samband við lögreglu. Bent er á að auk símans er hægt að hafa samband við lögreglu í gegn um netfangið unnar.astthorsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×