Fótbolti

Segja að Aron komi í staðinn fyrir Viðar hjá Hammarby

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Jóhannsson.
Aron Jóhannsson. Getty/Stuart Franklin
Sænska félagið Hammarby er að missa Viðar Örn Kjartansson en ætlar að fylla hans skarð með leikmanni með öðrum Íslendingi.

Samkvæmt heimildum fótboltasíðunnar FotbollSthlms er bandaríski landsliðsframherjinn Aron Jóhannsson að fara skrifa undir þriggja ára samning við Hammarby.

Viðar Örn Kjartansson kom á láni til Hammarby frá Rostov en nú er lánssamningurinn að renna út. Viðar á bara eftir tvo leiki áður en hann snýr aftur til Rússlands. Rostov vildi selja Viðar til Hammarby en það verður ekkert af því samkvæmt frétt FotbollSthlms.





Aron fæddist í Bandaríkjunum en ólst upp á Íslandi. Hann spilaði með yngri landsliðum Íslands en ákvað síðan að velja bandaríska landsliðið. Hann hefur spilað 19 landsleiki fyrir Bandaríkin og skorað í þeim 4 mörk.

Aron lék með Fjölni áður en hann fór út í atvinnumennsku. Hann hefur spilað sem atvinnumaður í Danmörku (Aarhus), Hollandi (AZ) og Þýskalandi (WerderBremen). Hann gerði frábæra hluti með AZAlkmaar í Hollandi þar sem hann skoraði 29 mörk í 58 leikjum. Það gekk ekki eins vel hjá WerderBremen og áttu meiðsli mikinn þátt í því.

Aron spilaði aðeins einn leik með WerderBremen á síðasta tímabili og þarf nú að finna sér lið þar sem hann fær að spila á ný.

Aron hefur misst sæti sitt í bandaríska landsliðinu á þessum tíma sínum hjá WerderBremen en hann lék sinn síðasta landsleik árið 2015.

Vidar Örn Kjartansson hefur skorað 5 mörk í 12 leikjum með Hammarby í sænsku deildinni og var í byrjunarliði íslenska landsliðsins á móti Albaníu í undankeppni EM. Ekki slæmar tölur en Hammarby ætlar ekki að kaupa hann samkvæmt þessu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×