Fótbolti

„Á endanum ekki hræddur við að velja Cecilíu“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Þrátt fyrir að vera nýorðin 16 ára hefur Cecilía leikið 35 keppnisleiki í meistaraflokki.
Þrátt fyrir að vera nýorðin 16 ára hefur Cecilía leikið 35 keppnisleiki í meistaraflokki. vísir/bára
Jón Þór Hauksson valdi Cecilíu Rán Rúnarsdóttir, markvörð Fylkis, í íslenska landsliðshópinn fyrir fyrstu tvo leikina í undankeppni EM 2021.

Cecilía kemur inn í hópinn í stað Guðbjargar Gunnarsdóttur sem er barnshafandi. Cecilía er fædd árið 2003 og fagnaði 16 ára afmæli sínu 26. júlí síðastliðinn.

Cecilía er ein þriggja markvarða í hópnum. Hinar eru Sandra Sigurðardóttir og Sonný Lára Þráinsdóttir sem eru báðar fæddar 1986 og verða 33 ára síðar á árinu.

Jón Þór segir að það sé vissulega áhætta að velja svona ungan markvörð í landsliðshópinn. Hann hefur þó fulla trú á Cecilíu og hefur hrifist af frammistöðu hennar í sumar.

Hefur sýnt mikinn þroska
Cecilía og stöllur hennar í Fylki eru komnar upp í 5. sæti Pepsi Max-deildar kvenna eftir þrjá sigra í röð.vísir/bára
„Auðvitað er maður hikandi við að velja svona ungan markvörð. Engu að síður hefur hún staðið sig mjög vel í Pepsi Max-deildinni í sumar, sýnt mikinn þroska og frábæra þróun,“ sagði Jón Þór í samtali við Vísi.

„Á endanum var ég ekki hræddur við að velja hana. En þegar ungir leikmenn koma inn máttu búast við því að frammistaðan verði upp og niður og við getum alveg átt von á því mistök eigi sér stað einhvers staðar á leiðinni. Þegar þú tekur svona unga leikmenn inn þarftu að vera tilbúinn að takast á við það og teljum okkur vera það.“

Cecilía hefur leikið ellefu af tólf leikjum Fylkis í Pepsi Max-deildinni í sumar auk þriggja leikja í Mjólkurbikarnum. Í fyrra lék hún með Aftureldingu/Fram og var valinn besti markvörður Inkasso-deildarinnar. Cecilía hefur leikið 15 leiki fyrir U-17 ára landsliðið og sex leiki fyrir U-16 ára liðið.

Cecilía verður í eldlínunni þegar Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×