Sport

„Eins og að ganga á tunglinu í fyrsta sinn“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eliud Kipchoge.
Eliud Kipchoge. Getty/Maja Hitij
Eliud Kipchoge ætlar sér að verða sá fyrsti í sögunni til að hlaupa maraþonhlaup á undir tveimur klukkutímum. Hann hefur sett stefnuna á að ná þessu í hlaupi í Vín í októbermánuði.

Tveggja klukkutímamúrinn í maraþonhlaupi hefur hingað til verið talinn vera illklifanlegur en besti maraþonhlaupari heimsins í dag vill komast yfir hann og er óhræddur við að tala um það.

Hinn 34 ára gamli Eliud Kipchoge mun reyna að klára Ineos 1:59 Challenge í Vín í október á undir tveimur mínútum.





Eliud Kipchoge á heimsmetið þegar hann kom í mark tveimur klukkutímum, einni mínútu og 39 sekúndum.

Tíminn sem hann fer á í hlaupinu í Vín verður þó ekki löglegt met því hann mun njóta góðs af tveimur aðstoðarhlaupurum sem er ætlað að halda uppi hraðanum og fara því af þeim sökum inn og út úr hlaupinu.

„Ég efast ekki um að ég geti náð þessu,“ sagði Eliud Kipchoge.





Eliud Kipchoge hefur gert áður svipaða tilraun og kom þá í mark á 25 sekúndum yfir markmiðinu. Það mót fór fram í Monza á Ítalíu árið 2017.

Nú mun hann hlaupa í Prater garðinum í höfuðborg Austurríkis en hann mun hlaupa í hringi á 9,6 kílómetra flatri braut. Það er allt til alls fyrir hann til að náð tímanum eftirsótta.

„Að komast niður fyrir tveggja klukkutíma markið verður eins og að ganga á tunglinu, klífa hæsta fjallið eða synda út í mitt úthaf,“ sagði Eliud Kipchoge.

„Þetta snýst um að skrifa söguna og skilja eftir arfleið. Ég ætla að gera það. Heimsmetið sjálft skiptir ekki öllu. Ég á þegar heimsmetið í maraþonhlaupi. Þetta er fyrir heimsfjölskylduna,“ sagði Kipchoge.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×