Erlent

Flugi til og frá Hong Kong aflýst vegna mótmæla

Andri Eysteinsson skrifar
Mótmælendur á alþjóðaflugvellinum í Hong Kong.
Mótmælendur á alþjóðaflugvellinum í Hong Kong. Getty/Anthony Kwan
Flugmálayfirvöld í Hong Kong hafa tekið þá ákvörðun að fresta öllu flugi til og frá borginni vegna mótmælanna sem þar geisa.

Farþegar í flugi þar sem innritun er ekki lokið missa því að ferðum sínum. Ákvörðunin var tekin vegna þess að mótmælendur höfðu hópast saman í og við flugvöllinn. Guardian greinir frá.

Götur umhverfis flugvöllinn voru fullar af fólki sem lokaði leiðum farþega að vellinum, þá voru bílastæði einnig troðfull. Um er að ræða fjórða daginn í röð þar sem mótmælt er við alþjóðaflugvöllinn.

Mótmælaaldan í Hong Kong hófst fyrr í sumar eftir að ríkisstjórnin hugðist samþykkja frumvarp sem heimilaði framsal sakamanna til Kína.

Með tíð og tíma þróaðist ergja mótmælenda frá því að vera beint að framsalsfrumvarpinu og varð að gagnrýni og mótmælum gegn ríkisstjórninni í heild.

 

Ríkisstjórnin líkt og mótmælendur gefur ekkert eftir

Tíu vikur eru liðnar frá upphafi mótmælanna og hvorki mótmælendur né ríkisstjórnin hefur gefið eftir og hefur ríkisstjórnin meðal annars kallað mótmælendur hryðjuverkamenn.

Mótmælendur og mannréttindahópar hafa gagnrýnt ríkisstjórnina og segja hana taka of hart á móti mótmælendum, sér í lagi eftir að táragasi var beitt gegn mótmælendum sem lokaðir voru inn á lestarstöð og eftir að lögreglumenn dulbjuggu sig sem mótmælendur áður en þeir framkvæmdu handtökur.

Lögreglumenn hafa einnig orðið fyrir meiðslum, þónokkrir lögreglumenn hafa kvartað yfir augnmeiðslum eftir að mótmælendur hefðu beint leysigeislum að þeim, auk þess hafa mótmælendur varpað bensínsprengjum yfir lögreglumenn.

Yfirvöld boðuðu þingmenn og fjölmiðla fyrr í dag til blaðamannafundar þar sem að lögregla sýndi mátt sinn og megin með því að frumsýna tvær háþrýstivatnsbyssur sem notaðar hafa verið gegn mótmælendum í öðrum ríkjum.

Lögreglan í Hong Kong festi kaup á búnaðnum eftir mótmæli árið 2014 en þær hafa aldrei verið notaðar. Telja mótmælendur sýninguna vera fátt annað en hótun gegn mótmælendum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×