Fótbolti

Einkunnir Íslendinga eftir sigurinn á Ungverjum: Elín Metta í sérflokki

Íþróttadeild skrifar
Elín Metta var besti maður vallarins gegn Ungverjum.
Elín Metta var besti maður vallarins gegn Ungverjum. vísir/bára
Ísland vann 4-1 sigur á Ungverjalandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2021 í kvöld. Þetta var fyrsti keppnisleikur íslenska liðsins undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar.

Elín Metta Jensen var í sérflokki á vellinum í kvöld. Valskonan skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Hlín Eiríksdóttir og Dagný Brynjarsdóttir voru einnig á skotskónum.

Eftir rólegan fyrri hálfleik skipti íslenska liðið um gír í þeim seinni og vann á endanum öruggan sigur.

Einkunnagjöf Vísis má sjá hér fyrir neðan.

Byrjunarliðið:

Sandra Sigurðardóttir, markvörður 7

Örugg í öllum sínum aðgerðum. Greip vel inn í og varði ágætt skot Zsanetts Jakabfi í seinni hálfleik.

Ingibjörg Sigurðardóttir, hægri bakvörður 6

Átti ekki góðan fyrri hálfleik og augljóst að hún var ekki að spila sína kjörstöðu. Sendingar Ingibjargar voru misgóðar og hún var út úr stöðu í jöfnunarmarki. En spilaði mun betur í seinni hálfleik eins og allt íslenska liðið.

Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður 7

Átti góða sendingu á Hallberu í aðdraganda fyrsta marksins. Var óákveðin í marki Ungverja þar sem hún var fór ekki í Fanni Vágó. Fyrir utan það spilaði Glódís eins og hún gerir oftast, svöl með boltann og varðist vel. Var nálægt því að skora í upphafi seinni hálfleiks.

Sif Atladóttir, miðvörður 7

Hefði kannski getað gert betur í markinu en var annars pottþétt. Var fljót að skynja hættuna og bægja henni frá og framherjar Ungverjalands komust lítt áleiðis gegn Sif.

Hallbera Gísladóttir, vinstri bakvörður 7

Lagði upp mark Elínar Mettu með frábærri fyrirgjöf. Íslenska liðið fór lítið upp vinstra megin í fyrri hálfleik en Hallbera fékk úr meiru að moða í þeim seinni. Fékk boltann inn fyrir sig í marki Ungverjalands.

Hlín Eiríksdóttir, hægri kantmaður 7

Virkaði smá óstyrk í sínum fyrsta keppnisleik með landsliðinu og átti nokkrar slakar fyrirgjafir. En Hlín var rétt kona á réttum stað þegar hún kom Íslandi í 2-1 með sínu þriðja landsliðsmarki. Var tekin út af eftir markið.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, miðjumaður 6

Að venju sívinnandi og vann boltann oft. Spilaði aftar en hún hefur oft gert með landsliðinu. Líkt og allir leikmenn Íslands var hún betri í seinni hálfleik en þeim fyrri.

Sara Björk Gunnarsdóttir, miðjumaður 7

Lét lítið að sér kveða í fyrri hálfleik en átti stóran þátt í viðsnúningi íslenska liðsins. Fór fyrir liðinu í pressu og var venju samkvæmt grjóthörð í návígum. Þegar Sara spilar vel spilar íslenska liðið vel.

Agla María Albertsdóttir, vinstri kantmaður 6

Tapaði boltanum í aðdraganda marks gestanna. Átti ágæta spretti og lék eins og allt íslenska liðið betur í seinni hálfleik en þeim fyrri.

Dagný Brynjarsdóttir, sóknarmiðjumaður 7

Róleg í fyrri hálfleik en frábær í þeim seinni. Kom sér í færi og hefði hæglega getað skorað fleiri en eitt mark.

Elín Metta Jensen, framherji 9

Hennar besti landsleikur fyrir utan leikinn gegn Þýskalandi fyrir tveimur árum. Kom Íslandi yfir með laglegu marki, lagði upp mark Hlínar og skoraði svo fjórða markið í uppbótartíma. Bjó til dauðafæri fyrir Dagnýju og hefði í kjölfarið átt að fá vítaspyrnu. Hreyfanleg, tók góð hlaup, skilaði boltanum vel frá sér og síógnandi.

Varamenn:

Svava Rós Guðmundsdóttir - (Kom inn á fyrir Hlín á 60. mínútu) 8

Frábær innkoma hjá Svövu. Átti stóran þátt í þriðja markinu og lagði það fjórða upp. Var svo nálægt því að skora sjálf. Gerir tilkall til sætis í byrjunarliðinu þegar Ísland mætir Slóvakíu á mánudaginn.

Fanndís Friðriksdóttir - (Kom inn á fyrir Öglu Maríu á 60. mínútu) 7

Líkt og Svava kom Fanndís inn með mikinn kraft. Fór ansi illa með hægri bakvörð Ungverja og komst oft og iðulega í góðar stöður. Fékk dauðafæri en skaut beint á Réka Szőcs í ungverska markinu.

Margrét Lára Viðarsdóttir - (Kom inn á fyrir Gunnhildi Yrsu á 73. mínútu)

Var mjög ógnandi og komst nokkrum sinnum í ákjósanlegur. Spilaði of lítið til að fá einkunn.


Tengdar fréttir

Sjáðu hvernig stelpurnar okkar afgreiddu Ungverja

Ísland vann fyrsta mótsleikinn undir stjórn Jóns Þórs Haukssonar er liðið vann 4-1 sigur á Ungverjum í fyrsta leiknum í undankeppni fyrir EM 2021 sem fer fram á Englandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×