Fótbolti

Hver verður í markinu í kvöld? Sérfræðingar svara

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hver þeirra verður í markinu í kvöld?
Hver þeirra verður í markinu í kvöld? vísir/vilhelm
Ein stærsta spurningin þegar kemur að byrjunarliði Íslands gegn Ungverjalandi í undankeppni EM 2021 er hver stendur á milli stanganna.

Guðbjörg Gunnarsdóttir, sem hefur verið aðalmarkvörður landsliðsins undanfarin ár, er barnshafandi og því ekki í hópnum.

Landsliðsþjálfarinn Jón Þór Hauksson valdi þrjá markverði í hópinn fyrir leikina gegn Ungverjalandi og Slóvakíu. Þetta eru þær Sandra Sigurðardóttir (Val), Sonný Lára Þráinsdóttir (Breiðabliki) og Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Fylki).

Sandra og Sonný hafa verið í landsliðinu undanfarin ár en hin 16 ára Cecilía er nýliði. Sandra hefur leikið 23 landsleiki og Sonný sjö.

Vísir leitaði álits tveggja sérfræðinga á því hver verður í markinu í leiknum í kvöld.

Sandra hefur átt sitt besta ár í Valstreyjunni„Það er stórt að missa Guggu út sem hefur spilað lengi með stelpunum og þekkir þetta út og inn. En ég held að við gætum ekki fengið Söndru inn á betri tíma og ég held að hún verði í markinu í kvöld. Að mínu mati hefur hún átt sitt besta ár í Valstreyjunni,“ segir Hulda Mýrdal Gunnarsdóttir, annar stjórnanda hlaðvarpsins Heimavallarins sem fjallar um kvennafótbolta.

Hún segir að skipti máli að Sandra hafi spilað með varnarmönnum íslenska liðsins og þekki þá.

„Síðustu tveir landsleikir voru vináttuleikir við Finnland. Þar skiptu Gugga og Sandra þeim á milli sín. Annars hafa Sonný og Sandra skipt þessu á milli sín síðan Jón Þór tók við. Ég ætla að tippa á Söndru í kvöld. Ef varnarlínan verður skipuð Hallberu, Glódísi, Sif og Ingibjörgu er Sandra mörgum hnútum kunnug þar. Er orðin þrælvön að spila með Hallberu og ól Glódísi upp í Stjörnunni svo það er ekkert vandamál þar,“ segir Hulda.

Eðlilegast að Sandra verði í markinu á þessum tímaGunnar Rafn Borgþórsson, fyrrverandi þjálfari kvennaliða Vals og Selfoss og sérfræðingur í Pepsi Max-mörkum kvenna á Stöð 2 Sport, telur einnig líklegast að Sandra verði í rammanum í kvöld.

„Ég reikna með því að Sandra verði í markinu. Mér fyndist það eðlilegast á þessum tíma,“ segir Gunnar. En af hverju? „Mikilvægi leiksins. Það hefur ekki reynt svakalega mikið á hana í sumar en hún er búin að vera lengi í landsliðinu og er góð. Hún yrði fyrsti fyrsti kostur hjá mér.“

Gunnar kveðst ánægður að sjá Cecilíu í landsliðshópnum og gerir ráð fyrir að hún fái tækifæri fyrr en síðar, jafnvel á Algarve-mótinu á næsta ári.

„Það er frábært að fá hana inn í þetta umhverfi því hún er klárlega kandítat til að taka við markvarðastöðunni. Mér þætti eðlilegt að hún fengi leiki á Algarve,“ sagði Gunnar.

Leikur Íslands og Ungverjalands hefst klukkan 18:45 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport. Upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 18:00. Einnig verður hægt að fylgjast með leiknum í beinni textalýsingu á Vísi.


Tengdar fréttir

Vegferðin til Englands hefst í kvöld

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu byrjar undankeppni EM 2021 í kvöld er liðið mætir Ungverjalandi á Laugardalsvellinum. Ætli íslenska liðið sér að fara á fjórðu lokakeppni Evrópumótsins í röð verður það helst að fara með sigur af hólmi í þessum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×