Fótbolti

Stelpurnar hafa unnið fyrsta heimaleik sinn í undankeppni EM síðustu tuttugu ár

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur þrisvar sinnum skorað í fyrsta heimaleik íslenska liðsins í undankeppni EM þar af fernu á móti Búlgaríu og sigurmark á móti Frökkum. Hér er Margrétu Láru fagnað af liðsfélögum sínum.
Margrét Lára Viðarsdóttir hefur þrisvar sinnum skorað í fyrsta heimaleik íslenska liðsins í undankeppni EM þar af fernu á móti Búlgaríu og sigurmark á móti Frökkum. Hér er Margrétu Láru fagnað af liðsfélögum sínum. Mynd/Vilhelm
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta hefur leik í dag í undankeppni EM 2021 en íslensku stelpurnar hafa komist inn á síðustu þrjú Evrópumót.

Mótherjar kvöldsins koma frá Ungverjalandi en leikurinn hefst klukkan 18.45 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Það þarf að fara tuttugu ár til baka til að vinna undankeppni EM þar sem íslenska kvennalandsliðið vann ekki sinn fyrsta heimaleik.

Stelpurnar hafa byrjað síðustu fjórar undankeppnir á sigri á heimavelli og markatalan í þessum fjórum leikjum er 15-1.

Sigurgangan hófst einmitt í fyrsta leik í undankeppni EM 2005 en sá leikur var einmitt á móti Ungverjum á Laugardalsvelli alveg eins og í kvöld. Margrét Lára Viðarsdóttir kom þá inn á í sínum fyrsta landsleik og var búin að skora eftir aðeins fjórar mínútur.

Margrét Lára skoraði líka í sigrinum í fyrsta leik í undankeppni EM 2009 (sigurmark á móti Frökkum) og EM 2013 (ferna á móti Búlgaríu). Hún lék líka fyrsta heimaleikinn í undankeppni EM 2017 en brenndi þá af vítaspyrnu í hundraðasta landsleiknum sínum.

Síðast mistókst íslensku stelpunum að vinna fyrsta heimaleikinn sinn í undankeppni EM í leik á móti Ítalíu 22. september 1999. Sex leikmenn í leikmannahópnum voru ekki fæddar þá og sú sjöunda, Agla María Albertsdóttir, var aðeins rúmlega mánaða gömul.

Síðasta tap íslensku stelpnanna í fyrsta heimaleik í undankeppni var í undankeppni Evrópumótsins 1997. Íslenska liðið mætti þá Rússlandi á Laugardalsvellinum og tapaði 4-1 en leikurinn fór fram 17. september 1995. Á þessum degi haustið 1995 voru níu leikmenn íslenska landsliðshópsins í dag ekki fæddar.

Glódís Perla Viggósdóttir, miðvörður íslenska liðsins, var enn fremur aðeins 82 daga gömul þegar íslenska kvennalandsliðið tapaði síðasta fyrsta heimaleik sínum í undankeppni EM.

Fyrsti heimaleikur íslenska kvennalandsliðsins í undankeppni EM 1999-2019:

EM 2017 - 2-0 sigur á Hvíta-Rússlandi

(Mörkin skoruðu: Hólmfríður Magnúsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir)

EM 2013 - 6-0 sigur á Búlgaríu

(Mörkin skoruðu: Margrét Lára Viðarsdóttir 4, Hólmfríður Magnúsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir)

EM 2009 - 1-0 sigur á Frakklandi

(Markið skoraði: Margrét Lára Viðarsdóttir)

EM 2005 - 4-1 sigur á Ungverjalandi

(Mörkin skoruðu: Erla Hendriksdóttir, Olga Færseth, Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir)

EM 2001 - 0-0 jafntefli á móti Ítalíu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×