Innlent

Verði þriðji orkupakkinn samþykktur á morgun er baráttunni þó ekki lokið

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Frosti Sigurjónsson er einn talsmanna Orkunnar okkar.
Frosti Sigurjónsson er einn talsmanna Orkunnar okkar.
Atkvæðagreiðsla fer fram um þriðja orkupakkann í þinginu á morgun. Fulltrúar Orkunnar okkar munu afhenda þinginu áskorun með 16 þúsund undirskriftum þess efnis að synja orkupakkanum. Verði þingið ekki við beiðni samtakanna munu þau leita til forsetans.

Frosti Sigurjónsson var gestur Kristjáns Kristjánssonar í þættinum Sprengisandi á morgun. Frosti hefur verið einna fremstur í umræðu gegn þriðja orkupakkanum. Hann segir að málið verði þeim flokkum erfitt í næstu kosningum sem samþykki pakkann.

„Núna þegar þessi samtök eru farin að vekja þjóðina þá heyri ég að það er mikill hljómgrunnur fyrir þessum sjónarmiðum. Við viljum bara fá að ræða þetta. Ég held að þetta verði stórt mál í næstu kosningum. Ætla þeir flokkar sem núna eru að fara að samþykkja þetta og ýta á já takkann, ætla þeir að vera flokkarnir sem svara kalli þjóðarinnar um að við fáum að ráða þessu sjálf. Þeir eru að missa allan trúverðugleika þegar þeir ýta á já takkann því það er núna sem þeir geta stooppað þetta,“ sagði Frosti Sigurjónsson.

Síðustu umræður fóru fram á Alþingi á fimmtudag og fer atkvæðagreiðsla um málið fram á morgun.

„Á morgun færum við þinginu þessa áskorun okkar og meira en 16 þúsund undirskriftir um að þingmenn bíði og leiti undanþágu Íslands frá þessu. Samþykki ekki þennan orkupakka. Ef þeir verða ekki við þeirri áskorun þá munum við skora á forsetann að staðfesta ekki orkupakkann. Við munum síðan halda áfram að útskýra fyrir þjóðinni mikilvægi þessara orkumála, skora á stjórmálahreyfingar allar að mynda sér skoðun á þessu máli svo að kjósendur næstu kosninga geti tekið afstöðu á grundvelli þessara mikla hagsmunamáls,“ sagði Frosti.

Allt bendir til þess að þriðji orkupakkinn verði samþykktur á morgun. Frosti segir að ef slíkt gerist haldi baráttan þó áfram gegn pakkanum.

„Fjórði pakkinn er á leiðinni. Sá fimmti hefur verið boðaður. Við verðum að segja; hvenær ætlum við að stoppa og það verður ekki auðveldara að stoppa þann fjórða ef við samþykkjum þann þriðja. Það getur vel verið að það takist ekki á morgun. Við hörmum það en við gefumst ekkert upp,“ sagði Frosti.

Hér að neðan má heyra viðtalið við Frosta í heild sinni. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×