Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni útsendingu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Sífellt fleiri dæmi eru um að strákar séu orðnir svo háðir grófu klámi að þeir þurfa á rislyfjum að halda um tvítugt. Tveir þriðju hluti drengja í tíunda bekk horfir einu sinni í viku eða oftar á klám en eftir því sem áhorfið eykst aukast líkur á að beitt sé ofbeldi í kynlífi að sögn verkefnastýru jafnréttisskóla borgarinnar. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Einnig segjum við frá því að Evrópusambandið hefur samþykkt að fresta útgöngu Bretlands. Fjallað verður um dauðsföll fyrrum skjólstæðinga Vogs en tólf manns á aldrinum 20-29 ára hafa látist núna á árinu. Við skoðum betur fyrirhugað bænahús múslima á Suðurlandsbraut og fylgjumst með íslandsmeistaramóti Street-dansara.

Þetta og margt fleira í kvöldfréttum á samtengdum rásum Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis kl. 18:30




Fleiri fréttir

Sjá meira


×