Viðskipti innlent

Icelandair og Boeing ná samkomulagi um frekari bætur

Kjartan Kjartansson skrifar
Icelandair segist sjá fram á betri horfur á fjórða ársfjórðungi.
Icelandair segist sjá fram á betri horfur á fjórða ársfjórðungi. Vísir/Vilhelm
Gengið var frá öðru samkomulagi á milli Icelandair og flugvélaframleiðandans Boeing um bætur vegna kyrrsetningar Max-farþegavélanna til viðbótar við fyrra samkomulag. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair vegna uppgjörs þriðja ársfjórðungs.

Icelandair hefur orðið fyrir fjárhagslegum skakkaföllum á árinu eftir að Max-vélar Boeing voru kyrrsettar fyrr á þessu ári í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa sem kostuðu á fjórða hundrað manns lífið. Sex vélar Icelandair voru kyrrsettar og þá fengust þrjár til viðbótar ekki afhentar vegna kyrrsetningarinnar. Fjórar þeirra hafa verið sendar til Spánar yfir veturinn.

Skilmálar samkomulagsins sem gengið var frá í dag eru trúnaðarmál. Í tilkynningu flugfélagsins segir að viðræður um frekari bætur standi enn yfir vegna fjárhagslegs taps vegna kyrrsetningarinnar. Ekki er gert ráð fyrir Max-vélunum aftur fyrr en í byrjun mars á næsta ári.

Nettóhagnaður Icelandair nam 7,5 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi og lýsir félagið áframhaldandi rekstrarbata. EBIT-hagnaður hafi numið tíu milljörðum króna á ársfjórðungnum sem sé um 300 milljónum krónum meira en á sama tímabili í fyrra. Farþegum hafi fjölgað um 27% í fjórðungnum, þökk sé sveigjanleika í leiðarkerfi Icelandair.

Tekjur námu 65,6 milljörðum króna í fjórðungnum og drógust saman um 2% á milli ára, eigið fé í lok september nam 62,2 milljörðum króna og eiginfjárhlutfall í lok september var 30%. Lausafjárstaða flugfélagsins er sögð nema 29,6 milljörðum króna.

Engu að síður er á ætlað EBIT-tap Icelandair 4,3-5,5 milljarðar króna á þessu ári þegar metin hafa verið neikvæð áhrif vegna kyrrsetningar Max-vélanna.

Þrátt fyrir það segist Icelandair búast við bættri afkomu á fjórða ársfjórðungi ársins 2019. Hætt hafi verið við óábatasama áfangastaði og flugfélagið beini kröftum sínum að því að laða ferðamenn til Íslands. Bókunarstaðan sé sterk og spár fyrirtækisins geri ráð fyrir hækkun á sætaverði á milli ára.


Tengdar fréttir

Yfirmanni MAX-mála hjá Boeing sparkað

Kevin McAllister, yfirmaður farþegaþotusviðs bandaríska flugvélaframleiðandans Boeing, hefur verið rekinn. Brottreksturinn hefur verið tengdur við vandræði Boeing í tengslum við 737 MAX vélarnar sem eru í flugbanni um allan heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×