Innlent

Bíl ekið inn í snjóflóð í Ljósavatnsskarði

Jóhann K. Jóhannsson og Kristín Ólafsdóttir skrifa
Engin slys urðu á fólki. Mynd er úr safni.
Engin slys urðu á fólki. Mynd er úr safni. lögreglan á norðurlandi eystra

Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur lokað veginum um Ljósavatnsskarð eftir að snjóflóð féll yfir veginn um klukkan tíu í kvöld. Bifreið var ekið inn í flóðið en til allrar mildi urðu engin slys.

Þetta staðfestir Jón Valdimarsson, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann segir jafnframt að eitt til tvö flóð til viðbótar hafi fallið í fjallinu.

Haft var samband við alla bændur og íbúa sem búa á þessum slóðum og opnuð fjöldahjálparstöð Rauða krossins að Stóru-Tjörnum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru þar um fimmtán manns.

Jón segir að litlar líkur séu á því að vegurinn verði opnaður í nótt. Mikil snjósöfnun hefur verið í fjallshlíðum fyrir norðan í dag og undanfarna daga og því snjóflóðahætta víða.

Kolvitlaust veður og ófærð

Þá var opnuð aðgerðarstjórn björgunarsveita og lögreglu á Húsavík vegna snjóflóðanna. Hjálmar Bogi Hafliðason, sem á sæti í aðgerðarstjórninni, segir að þrjár björgunarsveitir hafi verið kallaðar út. Björgunarsveitin Þingey, Hjálparsveit skáta í Reykjadal og Björgunarsveitin Garðar á Húsavík. Á annan tug björgunarsveitarmanna eru að störfum á fimm bílum og tveimur vélsleðum.

Hjálmar segir sleðamennina hafa ekið yfir flóðið til þess að tryggja að enginn hafi lent undir því. Það sé stærra en áður var talið, eða um 500 metra breitt. Á staðnum sé kolvitlaust veður og mikil ófærð. Flóðið sem féll kom úr Krossfjöllum, ofan við Ljósavatnsskarð og fór yfir Þjóðveg 1 við Ljósavatn.

Hjálmar segir að um fimmtán ökumenn sem hafi verið á ferðinni hafi leitað náða í heimavistarskólanum á Stóru- Tjörnum og að þar muni hugsanlega einhverjir gista í nótt. Hjálmar segir að þekkt sé að flóð falli á þessum slóðum en svæðið er ekki vaktað sérstaklega af snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands.

Hvass vindur er nú á landinu og einnig ofankoma norðan- og austantil. Gular viðvaranir eru í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi þangað til í fyrramálið. Þá var vegum víða lokað síðdegis í dag og fleiri lokanir tóku gildi í kvöld.

Þegar þetta er ritað hefur verið lokað fyrir umferð um Siglufjarðarveg, Ljósavatnsskarð, Öxnadalsheiði, Möðrudalsöræfi, Mývatnsöræfi, Vopnafjarðarheiði, Fjarðarheiði og Öræfasveit. Hægt er að fylgjast með vegalokunum á vef Vegagerðarinnar.

Fréttin hefur verið uppfærð.


Tengdar fréttir

Þrjú snjóflóð fundin og væntanlega fleiri fallið

Sérfræðingur á ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands segir að minnsta kosti þrjú snjóflóð hafa fallið undanfarin sólarhring. Líkur séu á því að þau séu fleiri en eigi eftir að koma í ljós þegar vegir verði opnaðir og rofar til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×