Fótbolti

Viðar Örn verður áfram í Tyrklandi: „Þetta á bara að gerast í gær“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson hefur raðað inn mörkum í mörgum löndum á ferlinum.
Viðar Örn Kjartansson hefur raðað inn mörkum í mörgum löndum á ferlinum. vísir/getty

Viðar Örn Kjartansson mun leika áfram með Yeni Malatyaspor í Tyrklandi á næstu leiktíð. Viðar Örn var á láni á yfirstandandi leiktíð frá tyrkneska liðinu Rostov og verður þar áfram á næstu leiktíð.

Selfyssingurinn hafði skorað eitt mark í fyrstu sjö leikjunum í Tyrklandi er allt var sett á ís vegna kórónuveirunnar. Deildin á að byrja aftur í júní og tímabilið klárað og því óvíst hvernig verður með næstu leiktíð.

„Ég verð áfram þar á næsta tímabili. Það er búið að græja það. 100% verð ég þar á næsta tímabili,“ sagði Viðar en óvíst er hvenær það tímabil byrjar vegna kórónuveirunnar.

„Ég veit ekki hvenær það byrjar og það verður líklega mikið vesen með marga leikmenn hvað varðar samninga og annað. Það eru margir að renna út 30. júlí og annað. Það er búið að „seal the deal“. Ég er mjög ánægður með það.“

Hann hefur verið reglulega að skipta á milli landa en honum líður vel í Tyrklandi.

„Það er skrýtið í Tyrklandi að þeir semja bara í eitt og hálf ár eða í mesta lagi tvö. Þetta er mjög „short way of thinking“. Þeir vilja bara árangur og ef þetta gengur ekki þá er það bara eitthvað nýtt. Þeir kaupa lítið unga leikmenn, fjögurra ára samningur og byggja eitthvað upp.“

„Þetta á bara að gerast í gær og svo sér maður til ef manni líkar vel í Tyrklandi og næsta tímabil fer vel þá gæti maður haldið áfram í Tyrklandi. Þetta er fínt,“ sagði Viðar.

Klippa: Sportið í dag - Viðar Örn verður áfram í Tyrklandi

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×