Innlent

For­stjóri Land­spítalans varar sér­stak­lega við Co­vid-gríni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala.
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala. Ljósmynd/Lögreglan

„Það hefur ýmislegt verið sett á netið þar sem gert er grín að veikindum, það er grínast með ástandið, það eru jafnvel ásakanir og skammir um að fólk hafi borið veiruna í aðra og svo hræðsla fólks við þann sem fengið hefur sjúkdóminn,“ sagði Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, á upplýsingafundi almannavarna vegna kórónuveirunnar í dag.

Hann segir það hafa komið fram í samtali við marga skjólstæðinga sem eru í eftirliti hjá Covid-19 göngudeild Landspítalans að þar gæti kvíða við að fara aftur út í lífið þegar sýkingu er lokið. „Kvíða við að hitta vinnufélaga, fyrir að hitta kunningja, vini og fjölskyldu.“

„Þetta eru áhyggjur af því að vera ekki orðinn frískur þótt manni líði þannig og líka kvíði fyrir því hvernig mann verður tekið þegar maður kemur til baka,“ sagði Páll. Hann segir svona umræðu vel þekkta í farsóttum og að ótti fólks við smitsjúkdóma gjarnan birtast með þessum hætti.

„Við erum hins vegar upplýs samfélag og við vitum betur. Það er ástæða til að vera varfærin í orðum og það er mjög mikilvægt að hafa í huga að þegar fólki er batnað þá er því batnað og þetta eru sérstaklega mikilvægir einstaklingar í að láta samfélagið ganga.“

Þá segir hann að sérstaklega þurfi að huga að ungmennum, sem eru mjög viðkvæm fyrir slíku umtali og framkomu. „Við viljum minna fólk á að sýna samkennd, gæta orða sinna og taka vel á móti þeim einstaklingum sem eru að koma til baka út í samfélagið eftir þessa erfiðu sýkingu.“

Hægt er að horfa á upplýsingafundinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Segir að krakkarnir bjargi geðheilsunni

Ari Freyr Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Oostende í belgísku úrvalsdeildinni, segir að lífið sé erfitt án fótboltans en belgíski boltinn var blásinn af á dögunum.

Mikilvægt að hlúa að geðheilsu

Mikilvægt er að huga að geðheilsu á þessum óhefðbundnu og erfiðu tímum. Við eigum að hlúa hvert að öðru og að sjálfum okkur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×