Körfubolti

Halldór Karl allt í öllu í þjálfun Fjölnis

Sindri Sverrisson skrifar
Halldór Karl Þórsson stýrði Fjölni upp í Domino's-deild kvenna.
Halldór Karl Þórsson stýrði Fjölni upp í Domino's-deild kvenna. FACEBOOK/@FJOLNIRKARFA

Körfuknattleiksdeild Fjölnis hefur samið við Halldór Karl Þórsson um að stýra báðum meistaraflokksliðum félagsins auk þess að gegna starfi yfirþjálfara yngri flokka.

Halldór Karl var þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni á síðustu leiktíð og aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla, sem var með Fal Harðarson sem aðalþjálfara.

Undir stjórn Halldórs vann kvennalið Fjölnis sér sæti í Domino‘s-deildinni á næstu leiktíð. Karlaliðið féll hins vegar niður í 1. deild.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×