Bílar

Renault hættir að selja fólksbíla með sprengihreyfli í Kína

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Renault Twingo á bílasýningunni í Genf.
Renault Twingo á bílasýningunni í Genf.

Renault ætlar að draga sig út úr eigendahópi Dongfeng Renault Automotive Company, sem franski framleiðandinn á til helminga við kínverska framleiðandann Dongfeng Motor Group Co. Félögin stóðu saman af sölu Renault bíla í Kína.

Rafbílar og atvinnubílar frá Renault verða þó enn til sölu í Kína. Renault hefur verið í samstarfi við Brillianve Jinbei Automotive Company, eGT og Jiangxi Jiangling.

„Renault mun halda áfram að veita hágæða þjónustu við 300.000 viðskiptavini sína í gegnum Renault umboð,“ samkvæmt yfirlýsingu frá Renault.

Renault hefur eins og margir aðrir framleiðendur fundið verulega fyrir lokunum á verksmiðjum vegna kórónaveirunnar.

Verkefni Renault og Dongfeng var rekið með miklu tapi, félagið seldi einungis 18.607 bíla á síðasta ári, en hefði geta slet um 110.000 eintök. Tapið var því um einn og hálfur milljarður yuan eða sem nemur um 30,5 milljörðum íslenskra króna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×