Handbolti

Fór langt í viðræðum við tvö önnur félög: „Mjög spenntur fyrir því að fara á Selfoss“

Sindri Sverrisson skrifar
Guðmundur Hólmar Helgason er enn staddur í Austurríki en flytur á Selfoss í sumar.
Guðmundur Hólmar Helgason er enn staddur í Austurríki en flytur á Selfoss í sumar. MYND/STÖÐ 2 SPORT

„Ég mun fara beint á Kaffi Krús. Síðan er það sundlaugin og ein góð pylsa,“ sagði handboltamaðurinn Guðmundur Hólmar Helgason léttur í bragði í Sportinu í dag þar sem tilkynnt var um heimkomu hans úr atvinnumennsku og samning við Selfoss.

Guðmundur Hólmar er frá Akureyri en hefur leikið sem atvinnumaður í Frakklandi og Austurríki síðustu ár auk þess að hafa farið með íslenska landsliðinu á Evrópumótið 2016. Um áramót ákvað hann og fjölskylda hans að tímabært væri að halda heim til Íslands og þrátt fyrir áhuga fleiri félaga urðu ríkjandi Íslandsmeistarar Selfoss fyrir valinu. Þar mun Guðmundur leika undir stjórn annars Akureyrings, Halldórs Jóhanns Sigfússonar, sem tekinn er við liðinu:

„Það er ein af ástæðunum fyrir því að við ákváðum að fara á Selfoss. Dóri hringdi í mig og útskýrði sína hugmyndafræði og hvað hann sæi fyrir sér varðandi mig og þetta lið, og stemninguna í kringum liðið í bænum. Það heillaði mig mikið og ég er mjög spenntur fyrir því að fara á Selfoss og spila fyrir Dóra,“ sagði Guðmundur í Sportinu í dag.

Ætla má að KA og Þór hafi verið meðal þeirra félaga sem freistuðu þess að fá Guðmund í sínar raðir áður en hann valdi Selfoss en Guðmundur vildi ekki gefa upp hvaða önnur félög hann hefði rætt við.

„Ég ætla ekki að ljúga neinu um það að þetta var alveg erfitt val. Hausverkur. Það voru nú ekki öll liðin að hafa samband við mig en við vorum í sambandi við nokkur lið og fórum sérstaklega ansi langt í viðræðum við tvö önnur félög. Síðan er það þannig að við erum að koma heim út af ákveðnum ástæðum. Konan til að hún geti sinnt sinni vinnu og ég til að fara í þetta nám sem ég hef hugsað mér. Þau lið, einungis kannski af þessum ástæðum, urðu því eftir á,“ sagði Guðmundur sem hyggur á meistaranám í lögfræði.

Klippa: Sportið í dag - Guðmundur Hólmar um komuna á Selfoss

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.


Tengdar fréttir

Guðmundur leikið sinn síðasta leik í Austurríki

Guðmundur Hólmar Helgason, leikmaður West Wien, í austurrísku úrvalsdeildinni í handbolta hefur leikið sinn síðasta leik fyrir félagið þar sem handknattleikssambands Austurríkis hefur blásið allar keppnir á sínum vegum af.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×