Innlent

Niðurstöðurnar hafi því miður ekki komið á óvart

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar

Niðurstöður könnunar á vinnustaðamenningu á Alþingi koma verr út en sambærilegar kannanir á öðrum vinnustöðum. Fulltrúar í jafnréttisnefnd þingsins segja að því miður hafi niðurstöðurnar ekki komið á óvart.

Í niðurstöðum könnunarinnar sem kynntar voru í gær kemur meðal annars í ljós, að í eða í tengslum við starf sitt á Alþingi, segjast hátt í 38% þingmanna hafa orðið fyrir einelti, um 18% segjast hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni og hátt í 32% fyrir kynbundinni áreitni. 

Hlutfallið er nokkru lægra hvað varðar starfsfólk skrifstofu Alþingis og starfsfólki þingflokka, fyrir utan að hátt í 30% starfsfólks þingflokka sem tók þátt í könnuninni segist hafa upplifað kynferðislega áreitni.

Sjá einnig: Sextán prósent svarenda í könnun á Alþingi höfðu upplifað kynferðislega áreitni í starfi

„Það sló mig hversu margir þetta eru,“ segir Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis. „Bara svo það sé sagt þá finnst mér ekkert frekar en aðrir í þessu samfélagi eigi að þurfa að þola þessa háttsemi. Þannig að það er mjög alvarlegt að það skuli vera meirihluti þeirra sem svara játandi skulu vera þingmenn. En þarna eru líka starfsmenn, bæði starfsfólk skrifstofunnar og starfsmenn þingflokka og það er alveg á hreinu að við þurfum að skoða þann þátt málsins mjög vel líka,“ segir Ragna.

Ragna Árnadóttir, skrifstofustjóri Alþingis.Vísir/Vilhelm

Hún situr í jafnréttisnefnd Alþingis auk mannauðsstjóra og tveggja þingmanna en nefndin hyggst fylgja eftir niðurstöðum könnunarinnar, leita til sérfræðinga og reyna að finna leiðir til úrbóta. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins er önnur þeirra þingmanna sem sæti eiga í nefndinni.

„Þetta eru sláandi niðurstöður. Ég get ekki sagt að það hafi komið mér verulega á óvart, ég átti alveg eins von á því. Við höfum séð sambærilegar niðurstöður frá Alþjóðaþingmannasambandinu og Evrópuráðinu, þannig þetta eru kannski ekki nýjar fréttir fyrir okkur sem starfa á vettvangi stjórnmálanna,“ segir Bryndís.

„Ég hef engu að síður verulegar áhyggjur af þessu og ég hef líka sérstakar áhyggjur af því að starfsmönnum Alþingis líði ekki nógu vel,“ bætir Bryndís við.

Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar.Vísir/Sigurjón

Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingarinnar sem einnig situr í nefndinni, tekur í svipaðan streng. „Það er kannski erfitt að segja að niðurstaðan hafi komið á óvart, þetta er nú ekkert langt frá því sem að við höfum verið að sjá í könnunum í samfélaginu almennt. Þetta er nú kannski ívið óhagsræðara okkur heldur en hefur komið fram til dæmis í könnunum Háskóla Íslands,“ segir Guðjón.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×