Keyrði inn í þvögu mótmælenda og skaut einn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 8. júní 2020 08:06 Lögreglan í Seattle hefur haft hendur í hári árásarmannsins. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki með beinum hætti. Lindsey Wasson/Getty
Maður í bandarísku borginni Seattle í Washington-ríki hefur verið handtekinn eftir að hann ók inn í þvögu mótmælenda og skaut minnst einn. Á myndbandi sem náðist af atvikinu sést maðurinn skjóta mótmælanda úr bifreið sinni, og flýja svo vettvang fótgangandi. Slökkvilið borgarinnar segir einn hafa verið fluttan á slysadeild. Um er að ræða 27 ára karlmann, en ástand hans er sagt stöðugt. Á vef Seattle Times er birt myndband af atvikinu. Myndbandið hefst þegar bifreið mannsins hefur numið staðar og mótmælandi stendur fyrir utan bifreiðina. Þá skýtur ökumaðurinn einu skoti og mótmælandinn hörfar frá. Í kjölfarið stekkur maðurinn út úr bílnum og veifar skammbyssu. Við það hlaupa mótmælendur í burtu og maðurinn gengur af vettvangi og í átt til lögreglunnar. Næst sýnir myndbandið, sem er klippt, þegar sjúkraflutningamenn hjálpa mótmælandanum sem varð fyrir skoti á fætur og hann er færður af vettvangi. Mikinn fögnuð mátti merkja hjá öðrum mótmælendum þegar hann stóð upp. Myndbandið af atvikinu má sjá hér að neðan, en viðkvæmari lesendur eru varaðir við efni þess.
Bandaríkin Dauði George Floyd Skotárásir í Bandaríkjunum Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira