Erlent

Fimm hundruð minnast Floyd í Houston

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar

Jarðarför George Floyd, svarts Bandaríkjamanns sem lögregluþjónn er sakaður um að hafa myrt í Minneapolis, hófst klukkan fimm.

Minningarathöfn, opin almenningi, fór fram í Houston í gær en í dag safnast vinir og fjölskylda hins látna saman í kirkju í borginni til þess að kveðja Floyd. Mikill fjöldi hafði safnast saman fyrir utan kirkjuna þegar líkkistan var borin inn.

Philonise Floyd, bróðir hins látna, þakkaði gestum minningarathafnar gærdagsins kærlega fyrir í nótt og minnti á að vandinn væri stærri en dauði Floyds.

„Þetta er stærra en George núna. Þetta snýst um að fólk þurfi ekki að vera hrætt við lögregluna lengur,“ sagði hann.

Ræðumenn minnast Floyds

Þó nokkrir hafa þegar haldið ræðu við athöfnina. Al Green, svartur öldungadeildarþingmaður Demókrata frá Texas, sagði jarðarförina sýna að Floyd hafi skipt marga máli. 

„Eini glæpur hans var að fæðast svartur. Það var hans eini glæpur. George Floyd átti skilið að njóta sömu virðingar og allir aðrir, enda erum við öll börn Guðs. Það er afar ósanngjarnt að við skulum vera hér saman komin, en í dag viljum við fagna lífi George Floyd,“ sagði Green.

Myndband frá Joe Biden, væntanlegum forsetaframbjóðanda Demókrata, var spilað í kirkjunni. Þar sagði Biden að Bandaríkjamenn mættu ekki snúa baki við þessu mikilvæga augnabliki. „Við getum ekki hundað þá kynþáttafordóma sem hrjá bandaríska sál lengur,“ sagði þessi fyrrverandi varaforseti.

Þögn í Minnesota

Tim Walz, ríkisstjóri Minnesota, gaf í dag út tilskipun um átta mínútna og fjörutíu og sex sekúndna þögn í ríkinu í minningu Floyds. 

Sum sé jafnlengi og lögregluþjónninn Derek Chauvin, sem hefur verið ákærður fyrir morð, kraup á hálsi Floyds.

Forsetinn segir mótmælanda leiða lögregluna í gildru

Ekkert lát er á mótmælum gegn lögregluofbeldi sem kviknuðu eftir atvikið í Minneapolis. Lögregluþjónar víðs vegar um Bandaríkin hafa gengið hart fram og meðal annars nást á myndband við það að beita mótmælendur ofbeldi.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tjáði sig um atvikið sem við sjáum hér á Twitter í dag. Tveir lögregluþjónar í Buffalo ýttu karlmanni á áttræðisaldri í götuna í síðustu viku og er hann enn á sjúkrahúsi eftir atvikið. Trump sagði mögulegt að maðurinn hefði reynt að leggja gildru fyrir lögreglu og þóst detta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×