Íslenski boltinn

Tómas Ingi um Aron Bjarna­son: „Aldrei verið hrifinn af Aroni sem fót­bolta­spilara“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Aron Bjarnason í leik með Blikum síðasta sumar.
Aron Bjarnason í leik með Blikum síðasta sumar. Vísir/Bára

Tómas Ingi Tómasson, einn sparkspekingur Pepsi Max-markanna, segir að koma Arons Bjarnasonar í lið Vals muni ekki skipta sköpum í sumar en þetta sagði hann í fjórða og síðasta miðvikudags-upphitunarþætti Pepsi Max-markanna sem var á dagskránni í gær.

Valur var á meðal þeirra liða sem fjallað var um en einnig var farið yfir lið Stjörnunnar og bikarmeistara Víkings. Stjórnandinn Guðmundur Benediktsson spurði þá Tómas Inga og Atla Viðar Björnsson hvort að koma Arons, á láni frá Újpest í Ungverjalandi, myndi verða punkturinn yfir I-ið hjá Val.

„Ekki að mínu mati. Ég hef aldrei verið hrifinn af Aroni sem fótboltaspilara. Hann tók þarna þrjá til fjóra leiki með Blikum og var svo farinn út,“ sagði Tómas Ingi.

Aron gekk í raðir Újpest í Ungverjalandi síðasta sumar en hann spilaði vel með Blikum fyrri hluta tímabils og skoraði fjögur mörk í tíu leikjum og lagði upp annað eins.

„Fyrir mér finnst mér hann ekki jafn góður og öllum öðrum þannig að ég hlýt að hafa vitlaust fyrir mér. Það eru svo margir sem finnst hann rosa góður en mér finnst hann mjög takmarkaður,“ bætti Tómas Ingi við og hélt áfram:

„Hann er ösku fljótur en mér finnst hann ekki nýta færin sín. Auðvitað skorar hann úr öllum færunum sínum í þessari klippu en mér finnst hann mjög oft rekja boltann yfir endalínu og klaufalegur í tækniatriðum. Hraðinn hans á Íslandi getur þó auðvitað gert mjög mikið.“

Atli Viðar Björnsson segir að koma Arons minni dálítið á þegar Dion Acoff, núverandi leikmaður Þróttar, lék með Val á árunum 2017 og 2018. Valur varð Íslandsmeistari bæði árin.

„Hann á auðvitað sitt lang besta „run“ þessa fyrri umferð með Breiðabliki í fyrra sem verður til þess að hann fái þetta „múv“ til Ungverjalands en að fá hann þarna inn, er það ekki bara svipað og þegar þeir voru með Dion Acoff 2017 og 2018? Þeir eru með eina sprengju og geta ógnað inn fyrir,“ sagði Atli Viðar.

Klippa: Pepsi Max-mörkin: Umræða um Aron Bjarnason



Fleiri fréttir

Sjá meira


×