Íslenski boltinn

Þarf að standa sig til að halda lands­liðs­treyju númer eitt: „Hann var örugg­lega að semja eitt við­talið í leiknum“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hannes í leik með Valsmönnum síðasta sumar.
Hannes í leik með Valsmönnum síðasta sumar. vísir/getty

Tómas Ingi Tómasson, sparkspekingur Pepsi Max-markanna og fyrrum markahrókur, segir að Hannes Þór Halldórsson, markvörður Vals, þurfi að standa sig í sumar ef hann ætlar að eiga möguleika á að spila með Íslandi í umspilsleikjunum um sæti á EM 2021.

Valsmenn voru til umræðu í fjórða upphitunarþætti Pepsi Max-markanna í gær en Hannes gekk til raðir Vals fyrir tímabilið í fyrra. Hann lá undir nokkurri gagnrýni á sinni fyrstu leiktíð á Hlíðarenda og menn fylgdust vel með honum.

„Þetta er besti markvörður sögunnar á Íslandi og hann fyllilega verðskuldar það. Það gustaði um hann í fyrra, bæði innan og utan vallar, og menn voru ekki allir á eitt sáttir við framlag hans. Hann hefur sagt það sjálfur að honum hafi ekki fundist hann vera eins lélegur og umræðan var,“ sagði Atli Viðar.

„Það sem mér finnst þurfa að koma frá honum núna er að hann þarf að halda oftar hreinu. Hann þarf að standa undir stigum og sigrum. Hann hélt bara þrisvar hreinu í fyrra og þeir voru ekkert mikið að vinna 1-0 sigra. Ég held að þeir fari inn í mótið með það að markmiði að sækja 1-0 sigranna og þá er ósköp gott að hafa markvörð eins og Hannes.“

Tómas Ingi tók undir orð Guðmundar Benediktssonar um að Hannes þyrfti að spila vel í sumar ef hann ætlaði að halda byrjunarliðssæti í landsliðinu en menn eins og Rúnar Alex Rúnarsson og Ögmundur Kristinsson hafa verið að spila vel með liðum sínum erlendis.

„Það myndi ég segja. Nú er að lengjast í þessum umspilsleikjum og þetta er einhvern tímann í framtíðinni. Auðvitað verður hann að standa sig vel hérna heima. Hann á þetta ekkert sæti eins og einhver annar þó að hann hafi haldið því lengi og átt það skilið lengi, þá eru bara aðrir markmenn að koma upp.“

„Hannes verður líka góður í sumar. Þetta var ár sem var svolítill pirringur í honum. Ég held að það hafi skilað sér pínu lítið út á völlinn. Eitt viðtalið eftir leik, hann var örugglega að semja það í leiknum. Ég held að hann ætti að halda áfram að vera markvörður og hætta að pæla í því sem gerist fyrir utan völlinn, þá er hann stórkostlegur,“ sagði Tómas Ingi og vitnaði væntanlega í viðtal við Hannes eftir leik Vals og KR síðasta sumar.

Klippa: Pepsi Max-mörkin: Umræða um Hannes



Fleiri fréttir

Sjá meira


×