Einn reynslumesti dómari Íslands hefur áhyggjur af dómgæslunni í dag Ísak Hallmundarson skrifar 6. júlí 2020 19:30 „
Ég hef svolitlar áhyggjur af dómgæslunni og hef haft í svolítinn tíma. Ég er ekkert endilega upptekinn af þessum stóru atriðum, þau koma og eru kannski mest áberandi í þessu en ég hef meiri áhyggjur af gæðunum heilt yfir í dómgæslunni hjá okkur í dag. Í rauninni finnst mér menn á köflum bara ekki kunna þetta nógu vel, bæði leikfræðilega, hvað er leikbrot, og kannski ekki síður hvernig á að bera sig að,“ segir Jóhannes Valgeirsson, fyrrum dómari og einn sá reyndasti í þeim bransa, en hann var í viðtali við Sportpakkann í dag. Mikil umræða hefur verið um dómgæslu nú í upphafi Íslandsmótsins. „Þetta er búið að vera að þróast í þessa átt í dálítið langan tíma. Núverandi dómaranefnd er að erfa þetta frá fyrrverandi dómaranefndum, það er bara þannig. Ég held það hafi verið ákveðið niðurbrot í dómaramálum á Íslandi fyrir nokkru síðan, byrjaði fyrir löngu síðan. Ég öfunda ekkert endilega þennan hóp, þetta er erfiður hópur, það eru margir kóngar og hafa alltaf verið Ég veit ekki af hverju dómarar eru ekki að standa sig nógu vel í dag, ég hefði viljað sjá meiri gæði og menn gera þetta með meiri reisn. Mér finnst alveg með ólíkindum að menn viti ekki komnir inn í mót hvað mega vera margar skiptingar í neðri deildum. Að menn viti ekki ákveðna grunnhluti í knattspyrnufræðum eins og hvað er leikbrot. Það er ekki ásættanlegt,“ segir Jóhannes en hann telur að það þurfi að setjast niður og vinna mjög alvarlega í hlutum hvað varðar dómgæslu á Íslandi. Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Íslenski boltinn Fótbolti Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: KA - ÍA 2-3 | Skagamenn sóttu sigur norður KA-menn hafa geta treyst á stigin í Skagaleikjunum síðustu ár Ráku Brynjar Björn strax eftir leik Óli Jó skellihló eftir pillu Heimis til KSÍ: „Takk fyrir mig“ Sjáðu markaveisluna og magnaða endurkomu Framara á móti FH „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Líkti stórleiknum við messu: „Saknaði tryllingsins“ Leikdagurinn: Væri líklega kokkur ef frændurnir hefðu ekki látið hana standa í marki „Ég hef mjög gaman af því að æsa Arnar upp“ Sjáðu Víkinga ná stigi í uppbótatíma og Valsmenn leika sér að Stjörnunni Þróttarar langöflugastir í sölu á varningi og veitingum Fram og Grótta jöfn á toppnum „Búið að sitja aðeins í manni“ „Förum ekki að vorkenna okkur“ „Gott að fá sjálfstraust“ Uppgjör: Valur - Stjarnan 5-1 | Magalending Stjörnunnar á Hlíðarenda Uppgjör: Breiðablik - Víkingur R. 1-1 | Meistararnir björguðu stigi í uppbótartíma Systkinin sömdu bæði við Skagaliðið Breiðablik-Víkingur: Rígurinn sem reisti deildina upp frá dauðum Færeyingar á undan Íslendingum í VAR-málum Davíð Smári ekki á hliðarlínunni í næsta leik Vestra Markvarðamartröð KR: „Getur ekki barist um titla þegar markverðirnir gefa trúðamörk“ Fjögur félög græddu langmest á félagaskiptum Létu Valsmenn heyra það: „Þarna sjáið þið hvað þeim er farið að líða illa“ „Tanaður Lárus Orri mættur á svæðið“ Langþráð í Lautinni: Sjáðu mörkin úr fyrsta sigri Fylkismanna Sjá meira