Bílar

Ford smíðaði 1400 hestafla raf-Mustang

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mustang Mach-E 1400 að drifta.
Mustang Mach-E 1400 að drifta.

Ford hefur undanfarið verið að prófa bíllinn sem skilar 1400 hestöflum frá sjö mótorum og er hannaður til að stunda drift akstur, spyrnu nú eða bara hvað annað sem hugurinn girnist. Hann er kallaður Mustan Mach-E 1400.

Bíllinn er samvinnuverkefni Ford og RTR sem er stillingafyrirtæki í eigu Ford. Aflrásin er fremur flókinn eins og gefur að skilja með sjö mótora til taks.

„Mustang Mach-E 1400 er með sjö mótora - fimm meira en jafnvel Mustang Mach-E GT. Þrír eru tengdir fremra mismunadrifinu og fjórir eru að aftar í pönnukökustíl, með eitt drifskaft til að tengja þá við mismunadrifin, það gefur gríðarlegt svigrúm í uppsetningu bílsins allt frá drifti yfir í háhraða brautarakstur,“ segir í kynningarefni frá Ford.

Innra rými í Mustang Mach-E 1400.

Þegar talað er um pönnukökustíl, þá er það raunar frekar nákvæm lýsing. Yasa P400 mótorarnir, sem hver og einn skilar 214 hestöflum liggja bókstaflega eins og pönnukökur hlið við hlið.

Til stendur að sýna gripinn á NASCAR kappakstri í náinni framtíð en ekki hefur verið gefið upp á hvaða viðburði það verður.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×