Íslenski boltinn

Grjóthörð og með geggjaða tækni - Ætti ekki að fara aftur til Keflavíkur

Sindri Sverrisson skrifar
Sveindís Jane Jónsdóttir fagnar með liðsfélögum sínum eftir eitt markanna gegn Val.
Sveindís Jane Jónsdóttir fagnar með liðsfélögum sínum eftir eitt markanna gegn Val. VÍSIR/DANÍEL

„Hún er ekki bara fljót. Hún er með geggjaða boltatækni og er grjóthörð,“ sagði Kristín Ýr Bjarnadóttir í Pepsi Max-mörkunum þegar sérfræðingarnir ræddu um Sveindísi Jane Jónsdóttur.

Sveindís stal senunni í toppslag Breiðabliks og Vals þegar hún skoraði þrennu í 4-0 sigri Blika síðasta þriðjudag og ljóst að erfitt verður að líta framhjá henni þegar A-landsliðið snýr aftur til keppni í september.

„Þetta var bara hennar leikur. Það var hún sem skildi á milli liðanna,“ sagði Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir um frammistöðu Sveindísar.

Sveindís, sem er aðeins 19 ára, kom að láni til Breiðabliks frá Keflavík í vetur eftir að Keflavík féll niður í 1. deild. Keflvíkingar virðast á góðri leið með að komast aftur upp í efstu deild og spurning hvað Sveindís gerir þá.

„Mér finnst að hún ætti að vera í Breiðabliki í nokkur ár en svo á hún bara að fara út í sterkari deild – ekki til baka til Keflavíkur þó að það sé örugglega gott að vera í Keflavík,“ sagði Kristín Ýr. 

Sýndi að hún hefur leikskilninginn

Sérfræðingarnir eru ánægðir með að sjá hve vel Sveindís hefur spjarað sig í nýju og betra liði:

„Hún er líka í allt annarri stöðu. Við vorum búnar að sjá að hún væri góð ein frammi, með Keflavík, en það sem að mann langaði mjög mikið að sjá var hvort hún myndi fúnkera vel inni í svona vel skipulögðu liði. Hvort hún væri með leikskilninginn, í stað þess að vera bara ein að gera allt. Hún sýnir það þarna,“ sagði Kristín Ýr.

Með Sveindísi, Öglu Maríu Albertsdóttur og Berglindi Björg Þorvaldsdóttur í fremstu víglínu virðist Blikaliðið illviðráðanlegt.

„Þær hafa meiri vídd í sóknarleiknum sínum en Valur. Þær eru með ólíkari leikmenn sem að hafa allar eitthvað mismunandi fram að færa. Þær geta róterað mikið betur. Þú færð hlaup á bakvið línu frá miðjumönnum, kantmenn koma inn á miðsvæðið, en hjá Val ertu að treysta á Elínu Mettu og Hlín og ef þær eru ekki „on“ þá er ekki hægt að gera neitt,“ sagði Bára.

Klippa: Pepsi Max mörkin - Umræða um Sveindísi

Tengdar fréttir

Sveindís Jane: Elska að spila á móti Val

Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði sína fyrstu þrennu í efstu deild þegar Breiðablik vann stórsigur á Val, 4-0, í uppgjöri efstu liða Pepsi Max-deildar kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×