Lífið

Tvíburar komnir í heiminn: „Litlu kraftaverkin okkar“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Harpa og Guðmundur eignuðust eineggja tvíbura, tvo drengi.
Harpa og Guðmundur eignuðust eineggja tvíbura, tvo drengi. MYNDIR/INSTAGRAM/BREIÐABLIK

Förðunarfræðingurinn Harpa Káradóttir og Guðmundur Böðvar Guðjónsson eignuðust tvíbura á fimmtudaginn.

Harpa greinir frá þessu á Instagram og segir þar:

„Og allt í einu eru þeir bara komnir til okkar. Við Guðmundur trúum varla okkar eigin augum. Litlu kraftaverkin okkar.“

Harpa þykir einn færasti förðunarfræðingur landsins og er í sambandi með knattspyrnumanninum Guðmundi Böðvari Guðjónssyni.

Harpa á eina dóttur úr fyrra sambandi en hér að neðan má sjá færslu hennar á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×