Innlent

Tvær tilkynningar um hópuppsagnir hafa borist Vinnumálastofnun í dag

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Færri umsóknir um atvinnuleysisbætur hafa borist þessi mánaðamótin en óttast var.
Færri umsóknir um atvinnuleysisbætur hafa borist þessi mánaðamótin en óttast var. Vísir/Hanna Andrésdóttir

Vinnumálastofnun hafa borist tvær tilkynningar um hópuppsagnir það sem af er degi. Færri hafa sótt um atvinnuleysisbætur en óttast var að sögn Unnar Sverrisdóttur forstjóra.

„Það hafa borist tvær hópuppsagnir og það 49 manns sem störfuðu hjá þessum fyrirtækjum,“ segir Unnur. „Það geta borist fleiri líka þess vegna það sem eftir lifir dags. Það kemur endanleg tala og greining á þessu eftir helgina.“

Í apríl var tilkynnt um 57 hópuppsagnir sem náðu til hátt í fimm þúsund manns. Ætla má að enn fleiri hafi misst vinnuna sem ekki var tilkynnt um í hópuppsögn. Þannig hefði uppsagnarfresti margra þeirra sem sagt var upp í vor átt að ljúka um þessi mánaðamót.

„Það komu færri umsóknir í júlí en við óttuðumst. Það eru góðu fréttirnar að þetta er eiginlega sama staðan í júní og júlí sem er mjög gott,“ segir Unnur.

Unnur Sverrisdóttir forstjóri VinnumálastofnunVísir/Egill Aðalsteinsson

Það bendi til þess að margir hafi ýmist verið endurráðnir, uppsagnir dregnar til baka eða fólk þegar fengið aðra vinnu. „Ég vona það að það hafi eitthvað glæðst, til dæmis í ferðageiranum fólk hafi ekki misst vinnuna eins og þeir bjuggust við heldur hafi einmitt fengið framlengingu á ráðningu eða fengið nýja vinnu,“ segir Unnur.

„Má segja að það er komið aftur svolítið óvissuástand í ljósi þessara nýju ráðstafana en við sjáum hvað setur. Það kemur í ljós um miðjan mánuðinn. Þetta helst allt í hendur við aðgerðir sóttvarnayfirvalda.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×