Handbolti

Kallaði leikmenn Katar negra

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Lino Cervar er umdeildur.
Lino Cervar er umdeildur. vísir/getty

Lino Cervar, þjálfari handboltaliðs Króata, er í erfiðum málum eftir að hafa misst sig í vináttulandsleik Króatíu og Katar.

Cervar, sem er með skapheitari þjálfurum, tók sína menn á teppið í leikhléi og lét þá eftirfarandi setningu flakka: „Negrarnir eru klókari en þið. Af hverju eruð þið alltaf að kasta boltanum frá ykkur?“

Fyrir utan þessa kynþáttafordóma þá kallaði hann sína leikmenn öllum illum nöfnum í leikhléum.

Ekki hafa enn komið nein viðbrögð frá forsvarsmönnum króatíska handknattleikssambandsins vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×