Enski boltinn

City ætlar ekki að bjóða í Soyuncu

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Caglar Soyuncu fagnar sigri með Leicester City.
Caglar Soyuncu fagnar sigri með Leicester City. Getty/Michael Regan

Manchester City mun ekki falast eftir kröftum tyrkneska varnarmannsins Caglar Soyuncu sem hefur slegið í gegn í vörn Leicester í vetur.

Heimildir Sky fréttastofunnar herma að City muni ekki leggja fram tilboð í Soyuncu í janúar þrátt fyrir háværa orðróma þess efnis á undanförnum vikum.

Soyuncu fékk stærra hlutverk í liði Leicester í kjölfar þess að Harry Maguire var seldur frá félaginu til Manchester United síðasta sumar og hefur hann verið algjör lykilmaður í öflugum varnarleik Leicester í vetur.

Þessi 23 ára gamli Tyrki kom til Leicester frá Freiburg sumarið 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×