Enski boltinn

Dyche stað­festir að Jóhann Berg hafi farið af velli vegna meiðsla

Anton Ingi Leifsson skrifar
Óheppnin eltir Jóhann Berg.
Óheppnin eltir Jóhann Berg. vísir/epa

Jóhann Berg Guðmundsson fór af velli í hálfleik er Burnley vann 4-2 sigur á Peterborough í þriðju umferð enska bikarsins í knattspyrnu.

Sean Dyche, stjóri Burnley, staðfesti eftir leikinn að Jóhann Berg hafi farið af velli vegna meiðsla aftan í læri.







Þetta eru slæm tíðindi því Jóhann Berg hafði nýlega jafnað sig af meiðslum aftan í læri en þá var hann á meiðslalistanum í tíu vikur.

Ekki er vitað hversu Jóhann Berg verður lengi frá í þetta skiptið en í mars bíða umspilsleikir hjá íslenska landsliðinu um sæti á EM 2020.

Jóhann Berg var ekki eini leikmaður Burnley sem fór af velli vegna tognunar aftan í læri en líkur eru á að Chris Wood, framherji liðsins, hafi einnig tognað.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×