Skoðun

Gæti Ísland orðið að paradís fyrir fjarvinnufólk?

Sarah Pike skrifar

Flestir þeirra ferðamanna sem heimsóttu Ísland á síðasta ári komu frá Bandaríkjunum, og skv. könnun Icelandair frá því í vor hafa Bandaríkjamenn enn áhuga á að heimsækja Ísland í framtíðinni. Ég er einn þessara Bandaríkjamanna. Mig langar hins vegar ekki lengur að vera bara ferðamaður; ég vona að einn góðan veðurdag muni ég geta búið á Íslandi til frambúðar.

Ég heimsæki Ísland reglulega (u.þ.b. þrisvar eða fjórum sinnum á ári). Þegar öruggt verður að ferðast á nýjan leik verð ég aftur mætt, með fartölvuna svo ég geti unnið vinnu mína hjá bandarísku fyrirtæki í fjarvinnu og jafnframt notið íslenskrar náttúru á ný. Ég vildi aðeins óska að ég gæti dvalið þar lengur, og bind við það miklar vonir að það verði hægt einn daginn.

Kveikjan að þessari nýju von var nýleg frétt af orðum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, um að vel komi til greina að skoða það alvarlega að gera erlendum ríkisborgurum sem vinna fyrir erlend fyrirtæki kleift að búa á Íslandi og sinna þaðan vinnu sinni sem fjarvinnu. Hún stakk jafnvel upp á því að ráðstafa fé til þess að koma Íslandi á framfæri erlendis sem landi sem henti vel til fjarvinnu. Rithöfundurinn Andri Snær Magnason hefur nýlega viðrað svipaðar hugmyndir. Hann segir: „Þetta gæti orðið afar áhugaverður veruleiki og eflaust yrðu til óteljandi óvænt tengsl, sambönd og tækifæri sem væru langtum mikilvægari en að streitast við að halda í gamla módelið.“ Gæti ekki hlotist af því mikill ávinningur fyrir Ísland að hvetja útlendinga til þess að dvelja hér nógu lengi til að þeir leggi sitt af mörkum til samfélagsins?

Frétt af bandaríska forstjóranum Kevin Laws, sem starfar með sprotafyrirtækjum í frumkvöðlasetri á Íslandi, veitir jafnframt innsýn í mögulega kosti þess að auðvelda erlendum ríkisborgurum sem vinna fyrir erlend fyrirtæki að sinna samstarfi og nýsköpun með íslenskum aðilum. Kevin minnist í fréttinni á það að hann geti sinnt vinnu sinni hvaðan sem er svo lengi sem hann hafi aðgang að nettengingu.

Kevin er ekki sá eini í þessari stöðu. Ört vaxandi hópur einstaklinga er í sömu stöðu og hann hvað varðar vinnu sína og getur unnið hvaðan sem hægt er að tengjast netinu. Þónokkur stór tæknifyrirtæki (Twitter, Facebook, Slack o.s.frv.) hafa sagst munu leyfa starfsfólki sínu að vinna heimanfrá til lengri tíma, jafnvel þegar faraldurinn verður yfirstaðinn. Ný könnun meðal leiðtoga í tölvutækni á ýmsum sviðum atvinnulífsins leiddi í ljós að yfir tveir þriðju fyrirtækja eiga von á að notast við fjarvinnuúrræði sín til lengri tíma.

Það er án efa til staðar fjölmennur hópur útlendinga sem gæti séð fyrir sér fjárhagslega með vinnu erlendis og skilað á sama tíma sínu til íslensks samfélags þannig að allir njóti góðs af. Það að koma Íslandi á framfæri sem fjarvinnulandi hefði í för með sér fjölmörg tækifæri til menningarlegs samstarfs, sem opnar ýmsar dyr á sviðum nýsköpunar og hagvaxtar.

Sjálf vonast ég til þess að geta á endanum unnið fyrir bandarískan vinnuveitanda minn en haft fasta búsetu á Íslandi. Jafnframt vonast ég til þess að öðlast fullt vald á íslenskunni (ég hef verið að læra hana í tvö ár) og láta gott af mér leiða í samfélaginu með því að bjóða góðgerðarsamtökum endurgjaldslaust vinnu mína á sviði markaðssetningar (sem ég starfa við).

Að faraldrinum loknum vil ég hvetja til nánari skoðunar á þessum möguleika, og þakka Þórdísi Kolbrúnu fyrir að vekja máls á þessari mögulegu tilhögun.

Höfundur er Bandaríkjamaður sem býr í Salt Lake City í Bandaríkjunum en heimsækir Ísland reglulega.  Þóra Ingvarsdóttir íslenskaði.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×