Skoðun

Fagráðunum verður fylgt fast eftir!

Sandra B. Franks skrifar

Það var mikið fagnaðarefni þegar Alþingi samþykkti undir lok síðasta þings ný lög sem meðal annars leiða til þess að fagráð verða sett upp í stað hjúkrunarráða. Fagráðin verða alls níu talsins, hjá heilbrigðisstofnunum Suðurlands, Reykjaness, Vesturlands, Vestfjarða, Norðurlands, Austurlands, Sjúkrahúsi Akureyrar og Landspítalanum. Auk þeirra verður líka sett upp fagráð við heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Áður en fagráðin geta tekið til starfa þarf heilbrigðisráðherra fyrst að setja reglugerð um starfsemi þeirra. Síðan verður það hlutverk stjórnenda viðkomandi stofnana að skipa fagráðin. Gert er ráð fyrir að helstu fagstéttir eigi fulltrúa í fagráðunum og fyrir liggja skýrar yfirlýsingar ráðamanna um það.

Í ljósi þess að sjúkraliðar eru næstfjölmennasta heilbrigðisstétt landsins er annað óhugsandi en sjúkraliðar eigi fulltrúa í öllum fagráðunum níu. Reynsla okkar sem burðarstéttar í starfsemi heilbrigðiskerfisins verður þá loks metin að verðleikum á þeim vettvangi þar sem hjúkrunarstefnan er mótuð. Fagráðin eru því mikill sigur í baráttu okkar sjúkraliða fyrir að standa á jafnfætis öðrum hjúkrunarstéttum innan kerfisins.

Fagráðin munu auka sýnileika sjúkraliða sem stéttar og styrkja verulega bæði faglega og stéttarlega ásýnd okkar. Vandlegur undirbúningur og stefnumótun um þátttöku fulltrúanna úr okkar röðum er því mikilvægur til að tryggja sterka innkomu og frumkvæði stéttarinnar inn á nýjan og áhrifamikinn vettvang.

Reynslan sýnir hins vegar að þegar löggjafinn mótar nýja stefnu, sem felur í sér gjörbreytingu, getur liðið langur tími þangað til kerfið hrindir henni í framkvæmd. Gleymum því ekki að hjá sumum stéttum sem sögulega hafa haft mikil áhrif innan kerfisins var veruleg andstaða við að leggja hjúkrunarráðin niður. Við sjúkraliðar höfum aldrei fengið neitt án þess að þurfa að berjast fyrir því og munum því örugglega þurfa að hafa fyrir því að hrinda lagaákvæðinu um fagráðin í framkvæmd.

Sjúkraliðafélagið mun því beita sér af alefli fyrir því að ráðuneytið setji kraft í að ljúka við gerð reglugerðarinnar. Það mun sömuleiðis í samráði við trúnaðarmenn sjúkraliða þrýsta fast á að stjórnendur heilbrigðisstofnana hefji undirbúning að stofnun fagráðanna um leið og reglugerðin verður tilbúin.

Forysta félagsins mun fylgja þessu máli tryggilega eftir uns það er í höfn!

Höfundur er Sandra B. Franks formaður Sjúkraliðafélags Íslands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×