Fótbolti

Sakaður um kynþáttafordóma gegn eigin leikmanni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Takefusa Kubo kemur inn á í leiknum gegn Espanyol.
Takefusa Kubo kemur inn á í leiknum gegn Espanyol. vísir/getty

Dani Pastor, þrekþjálfari Real Mallorca, hefur verið sakaður um kynþáttaníð í garð leikmanns liðsins, Japanans Takefusa Kubo.

Þegar Salva Sevilla meiddist í leik Mallorca gegn Espanyol á sunnudaginn átti Kubo að koma inn á sem varamaður.

Til að ná athygli Kubos flautaði Pastor á hann og teygði svo á augunum eins og hann væri skáeygður eins og sjá má hér fyrir neðan.



Kubo kom inn á sem varamaður á 65. mínútu. Mallorca tapaði leiknum með einu marki gegn engu. Liðið er í 18. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með 18 stig, tveimur stigum frá öruggu sæti.

Kubo, sem er 18 ára, er á láni hjá Mallorca frá Real Madrid sem keypti hann frá FC Tokyo síðasta sumar. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Real Madrid.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×