Skoðun

Til varnar myrtum vini

Sigurður Þórðarson skrifar

Það var fyrir meira en 20 árum og mér hefur ekki enn tekist að fyrirgefa Gerði Kristný fyrir þetta furðulega viðtal sem hún tók við Þórhall Ölversson, morðingja sem var gripinn var með blóðugar hendur eftir morðið á æskuvini mínum Agnari Agnarssyni.

Sem ritstjóri Mannlífs gaf hún morðingjanum færi á að réttlæta verknaðinn meðal annars með því að bera á fórnarlamb sitt upplognar sakir um refsiverða háttsemi. Með þessu háttarlagi reyndi þáverandi ritstjóri Mannlífs að ræna ærunni af hinum látna, þótt fátt ef nokkuð styddi frásögn morðingjans, sem ritstjórinn þóttist trúa, vitandi að hinn látni gat ekki borið af sé sakir sem ritstjórinn tíundaði í blaði sínu.

 Þetta var áfall og viðbótar refsing fyrir okkur sem syrgðu látinn vin. Sem nánasti aðstandandi hafði ég fengið að skoða heimili Agnars, sem var morðvettvangurinn. Blóði drifin íbúðin bar það með sér að um ránmorð var að ræða, morðinginn hafði augljóslega leitað í bókahillum og gefið sér góðan tíma til að fletta bókum, blóðugum höndum. Fjöldi misdjúpra stungusára þöktu líkama fórnarlambsins og báru glöggt merki um hetjulega baráttu sem sennilega hefur tekið nokkrar klukkustundir. 

Þar sem ég var náinn vinur fórnarlambsins vill svo til að ég veit nákvæmlega um ástæðu ránmorðsins: Ástæðan var sú að Agnari hafði þá nýverið tæmst arfur og ég var einn örfárra sem vissi að hann geymdi allt féð í gjaldeyri á heimili sínu. Þessi vitneskja hafði illu heilli borist til morðingjans, Þórhalls Ölvissonar, fáum klukkustundum fyrir verknaðinn. 

Aldrei hefur verið upplýst hvað varð um alla peningana, sem voru í reiðufé eins og áður segir. Um þetta hef ég gefið skýrslur bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Þessi skelfilega saga rifjaðist upp þegar ég las fréttir af því í fjölmiðlum að rithöfundurinn Gerður Kristný var að hæla sér af þessu framtaki sínu í hlaðvarpsþætti Ríkisútvarpsins. 

Þar yfirsést Gerði sorgin yfir voveiflegu morði en rithöfundurinn kemst á flug yfir spennandi ferð sinni á Litla-Hraun, þar sem rithöfundurinn þykist hafa náð fram óvæntri játningu. Mannorðsmorð er refsilaust sé sá er fyrir því verður þegar myrtur. Löglegt en fullkomlega siðlaust.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Um dánaraðstoð

Steinunn Þórðardóttir,Oddur Steinarsson,Thelma Kristinsdóttir,Katrín Ragna Kemp,Magdalena Ásgeirsdóttir,Margrét Ólafía Tómasdóttir,Ragnar Freyr Ingvarsson,Teitur Ari Theodórsson,Theódór Skúli Sigurðsson skrifar

Skoðun

Hún

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Sjá meira


×