Bílar

457 hestafla tengiltvinn Explorer PHEV

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ford Explorer PHEV.
Ford Explorer PHEV.

Nýr rafmagnaður tengiltvinn Ford Explorer PHEV er kominn til Brimborgar og verður frumsýndur á næstunni. Hann er búinn öflugri tvinnaflrás sem er samsett af 3,0 lítra EcoBoost V6 bensínvél auk rafmótors og 10 gíra sjálfskiptingu og 13,1-kWh rafhlöðu og skilar samanlagt 457 hestöflum og 840 Nm af togi.

Explorer er 7 sæta lúxusjeppi sem hentar einstaklega vel í lengri ferðir á fjöll, veiði, skíði eða í önnur ævintýri enda með góða veghæð eða 20cm. og dráttargetu upp á 2.500 kg. En jafnframt er nýi Explorer einstaklega hentugur í borgarakstur á hreinu rafmagni með drægi upp á 42 km og auðvelt og fljótlegt að hlaða bæði heima og í vinnu.

Ford Explorer PHEV - innstunga fyrir hleðslusnúru.

7 manna lúxus og 2.274 lítra farangursrými

Nýr Ford Explorer PHEV er endurhannaður frá grunni með nýju, útliti sem er kröftugt og vekur athygli annarra vegfarenda. Ford Explorer er rúmgóður og með lúxusrými fyrir 7 manns í þremur sætaröðum og því er nóg pláss fyrir alla og risastórt farangursrými. Þegar aftasta sætaröðin er felld niður þá mælist farangursrýmið 2.274 lítrar. Innra rýmið býður upp á 123 lítra geymslupláss um allan bílinn sem gefur öllum farþegum gott pláss fyrir sig og sína hluti. Þar með eru taldir 12 glasahaldarar.

Ríkulegur búnaður

Nýr Ford Explorer PHEV kemur í tveimur útgáfum, Platinum og ST-Line útgáfu. Báðar þessar útgáfur eru hlaðnar ríkulegum staðalbúnaði sem er með því flottasta sem er í boði. Sérhvert smáatriði er úthugsað til að tryggja lúxustilfinningu, hvort sem þú ert að aka um í borginni eða í meira krefjandi landslagi. Hann er með 10,1 tommu snertiskjá, nýjustu útgáfuna af SYNC 3, með FordPass Connect tengingu, B & O hljóðkerfi með 14 hátölurum og nudd í framsætum þannig þér líður alltaf vel við aksturinn sem verður því skemmtilegur. Að auki er 360° myndavél með tvískiptum skjá, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, BLIS með aðvörun fyrir hliðarumferð, umferðaskiltalesari og veglínuskynjari, árekstrarvari að framan sem skynjar einnig gangandi og hjólandi vegfarendur til að tryggja öryggi. Ford Explorer PHEV kostar frá 11.990.000 kr.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×