Maðurinn sem vill komast burt tryggði Palace stigin þrjú

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fagna sigurmarki Zaha.
Fagna sigurmarki Zaha. vísir/getty

Crystal Palace byrjar tímabilið af krafti en þeir unnu góðan 1-0 heimasigur á Southampton í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Fyrsta og eina mark leiksins skoraði Wilfried Zaha á 13. mínútu eftir laglegan undirbúning hjá Andros Townsend.

Zaha hefur verið mikið orðaður burt frá Palace, þar á meðal til Everton, en hann tryggði sínum mönnum að minnsta kosti stigin þrjú í dag.

Ekki skánaði ástandið hjá Southampton er Kyle Walker-Peters fékk að líta rauða spjaldið á 50. mínútu.

Zaha virtist vera koma Palace í 2-0 átta mínútum fyrir leikslok en markið var dæmt af eftir VARsjá skoðun.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira